„Ég var alltaf með tilfinningu um að það myndi eitthvað gerast og ég bað um að fara í valkeisaraskurð en fékk neitun,“ sagði nýkrýndur Íslandsmeistarinn og körfuboltakonan Embla Kristínardóttir í þættinum Dagmálum. Embla, sem er 27 ára gömul, segist hafa hugað mikið um fæðinguna meðan á meðgöngunni stóð og fór hún í mörg viðtöl til fæðingarlækna.
Þegar loks kom að fæðingunni og Embla fór af stað eitt kvöldið var hún orðin þreytt. „Þá bað ég um keisaraskurð og þá fékk ég líka neitun. Svo líður einhver hálftími, púlsinn var dottinn niður, og þá fæ ég að fara í keisaraskurð. Barnið er svo tekið og ég fer strax í aðgerð á leginu og í þeirri aðgerð er saumað í þvagleiðarann hjá mér,“ sagði Embla en þvagleiðarinn stíflaðist í kjölfarið sem varð til þess að nýrað á henni bólgnaði upp. Hún þurfti því að gangast undir nokkrar aðgerðir vegna þessa.
„Það fór allt úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis og það var því mjög sætt að lyfta dollunni í vor eftir allt sem á undan var gengið,“ sagði Embla en viðtalið má hlusta á í heild sinni hér.