Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari spyr hvort skortur sé á samkynhneigðum mönnum á Íslandi og hinsegin hælisleitendur „auðvitað ljúga“.
Helgi birti Facebook færslu þar sem hann vísar í nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála voru tekin á teppið en dómurinn dæmi að stofnunin og nefndin hefðu ranglega ekki tekið kynhneigð hælisleitanda trúanlega en hann sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2019 á grundvelli kynhneigðar sinnar.
Færsla Helga hefur verið á milli tannanna á fólki á samfélagsmiðlunum og má segja að flestir séu afar ósáttir við orð Helga Magnúsar. Færslan er eftirfarandi: „Flestir hælisleitendur koma í von um meiri pening og betra líf. Hver lýgur sér ekki til bjargar? Þar fyrir utan er einhver skortur á hommum á Íslandi?“
Fjölmiðlakonan og fjöllistakonan Margrét Erla Maack skrifaði athugasemd við deilingu á færslu Helga: „Ég get nú alveg sagt honum að já, það er skortur á hinsegin fólki á Íslandi.“
Vararíkissaksóknari.
Hinsegin fordómar bætast við langan lista af mannhatandi skoðunum sem eiga alls ekki heima hjá þessu embætti. Hvenær er komið nóg? pic.twitter.com/P12NxAt9sf
— Eiríkur Rafn (@eirikurrr) July 21, 2022