Þriðjudagur 23. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Venus Vala varð orðlaus í miðbænum: „Ég var kölluð dýraníðingur af einhverri kellingu niðrí bæ“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það er ekki í lagi með fólk, ég sver það,“ segir Venus Vala nokkur í færslu sem hún skellir inn í fjölmennt samfélag hundaeigenda á Facebook, Hundasamfélagið. Ástæðan fyrir gremju hennar er athugasemd sem vegfarandi gerði á dögunum við hundahald hennar í miðborginni.

Venus Vala lýsir því sem fram fór þeirra á milli í færslunni:

„Ég var kölluð dýraníðingur af einhverri kellingu niðrí bæ í gærkvöldi því hundarnir mínir voru íúlpum. Sem þeir biðja um að fara í og neita að fara út án þeirra þegar hitinn dettur niður fyrir 10° gráður. Mér brá bara pínu að það væri allt í einu gargað á mig og ég ásökuð um dýraníð þegar hundarnir mínir eru líklega ofdekruðustu hvuttar í vesturbænum. Það væri dýraníð að hafa þá ekki í úlpum,“ segir hún.

Venus Vala á þessa fallegu hunda sem klæðast úlpum þegar kalt er í veðri.

Þegar þetta er ritað hafa 116 ummæli verið rituð undir færslu Venusar. Flestir þeirra furða sig á hegðun konunnar sem gerði athugasemdir við klæðaburð hundanna. Birgitta er ein þeirra. „Ja hérna þessi hefur greinilega ekkert vit á hundum. Hvað þá þessari tegund. Já fólk stundum,“ segir Birgitta.

Og Siggi tekur í sama streng. „Vá en weird framkoma ad öskra á þig random. Fólk getur haft efasemdir um ýmislegt en kannski hægt ad spyrja bara er þeim ekkert of heitt frekar en ad garga á þig. Ruglið,“ segir hann.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -