Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Víða vægt frost

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Áframhaldandi norðaustan stormur og hríð á norðvestanverðu landinu í dag, og við bætist hríðarveður á norður og norðausturlandi þegar líður á daginn. Þetta segir í lýsingu veðurfræðings á vef veðurstofunnar.

Útlit er fyrir talsverða úrkomu syðst á landinu og með suðausturströndinni og því full ástæða til að skoða vel færð og veður áður en lagt er af stað í ferðalög.

Það dregur smám saman úr vindi og ofankomu á morgun, og verður víða hæg breytileg átt og stökku él annað kvöld, en þá herðir einnig á frosti.

Útlit er fyrir nokkuð rólegt veður á fimmtudag en á föstudag gæti dregið til tíðina með lægð sem ber með sér hlýindi og möguega rigningu á láglendi sunnan og vestanlands.

Horfur næsta sólarhringinn

Norðaustan 13-23 og snjókoma um landið norðanvert í dag, áfram hvassast á Vestfjörðum. Hægari vindur sunnantil og él, einkum með suðausturströndinni. Víða vægt frost.
Minnkandi norðanátt og éljagangur á morgun, allvíða hæg norðlæg eða breytileg átt síðdegis og stöku él norðantil en með suðurströndinni annað kvöld. Herðir á frosti.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -