Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Vikan ódýrust á Vesturlandi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það kostar íslensku vísitölufjölskylduna frá höfuðborgarsvæðinu að lágmarki ríflega 300 þúsund krónur að verja viku úti á landi þar sem ódýrast er að gista og leika sér. Þessi sama vika getur líka kostað fjölskylduna rúmlega 750 þúsund krónur, eða hátt í þrefalt meira sé dýrari gistimöguleiki valinn. Að meðaltali kostar vikan minnst á Vesturlandi og þar býðst einnig ódýrasta vikan miðað við að gist sé á tjaldsvæði. Sú vika kostar rétt rúmar 307 þúsund krónur með gistingu, afþreyingu, bensíni og fæði.

Á meðan óvissa ríkir um hvenær Íslendingum gefst aftur kostur á ferðalögum til útlanda hafa Ferðamálastofa og yfirvöld hvatt til ferðalaga innanlands í sumar. Allir Íslendingar, 18 ára og eldri, fá stafrænt gjafabréf að upphæð 5 þúsund krónur úr ríkissjóði og er litið á bréfið sem beinan stuðning við fyrirtækin í ferðaþjónustu vegna efnahagslegrar óvissu á COVID-tímum.

Mannlíf fór á stúfana og skipulagði vikuferðalag fjögurra manna fjölskyldu, foreldra með börn á aldrinum 7 og 14 ára, í öllum landsfjórðungum Íslands.

Austurland

Gisting á Austurlandi

GististaðurInnifaliðVerð
Tjaldsvæði EgilsstöðumRafmagn og gistináttaskattur25.000
Icelandair Hótel Hérað3 stjörnu, 2 x 2 manna herbergi165.886
LyngásGistiheimili, 2 x 2 manna herberbergi m/sama baðh.134.622
Ormurinn CottagesOrlofshús227.616

 

- Auglýsing -

Afþreying á Austurlandi – verð samtals 222.436 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurHestaleigan Húsey4 klst. reiðtúr77.460
LaugardagurBaðhúsið VÖKHefðbundinn aðgangur13.600
SunnudagurHjólaleiga Egilsstaðastofa4 hjól í sólarhring9.000
MánudagurSkriðuklaustur2 fullorðnir og 2 börn3.700
ÞriðjudagurSund á Egilsstöðum2 fullorðnir og 2 börn2.600
MiðvikudagurFjórhjólasafarí Í Hallormsstað2 fullorðnir og 2 börn63.162
FimmtudagurHreindýraskoðun við Laugafell2 fullorðnir og 2 börn76.076

 

Fastur kostnaður á Austurlandi – verð samtals 57.052 krónur

- Auglýsing -
Matarkarfa25.000
Bensín32.052

 

Kvöldverður á Austurlandi – verð samtals 62.613 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurN1Pylsutilboð2.768
LaugardagurVeitingastaðurinn Hérað2 x hreindýraborgari, 2 x lax, 4 x eftirréttur21.560
SunnudagurAskur Pizzeria4 x pizza dagsins8.796
MánudagurSubwayFjölskyldutilboð3.999
ÞriðjudagurSkálinn DinerRéttur dagsins7.400
MiðvikudagurSalt Café & Bistro4 x aðalréttur10.000
FimmtudagurN12 x bernaise-borgari, 2x ostborgari8.090

 

Vika á Austurlandi – meðaltalskostnaður 480.382 krónur

Samtals:
Tjaldstæði, afþreying, bensín og matur367.101
Hótel, afþreying, bensín og matur507.987
Gistiheimili, afþreying, bensín og matur476.723
Orlofshús, afþreying, bensín og matur569.717

 

Norðurland

Gisting á Norðurlandi

GististaðurInnifaliðVerð
Tjaldsvæði AkureyriRafmagn og gistináttaskattur33.481
Icelandair Akureyri3 stjörnu, 2 x 2 manna herbergi272.247
Guesthouse AkureyriGistiheimili, Classic 4 manna herbergi217.862
Log CottageOrlofshús301.399

 

Afþreying á Norðurlandi – verð samtals 192.070 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurBaðhúsin MývatniHefðbundinn aðgangur12.000
LaugardagurHestaleigan Pólar Hestar3 klst. reiðtúr55.000
SunnudagurSund Akureyri2 fullorðnir og 2 börn2.500
MánudagurFlugsafn Íslands2 fullorðnir og 2 börn5.000
ÞriðjudagurHjólaleiga Skjaldarvík4 hjól í sólarhring18.000
MiðvikudagurWhale Watching AkureyriHvalaskoðun35.970
FimmtudagurBjórbað Kaldi2 fullorðnir, 1 ungl., 1 barn31.800

 

Fastur kostnaður á Norðurlandi – verð samtals 44.624 krónur

Matarkarfa25.000
Bensín19.624

 

Kvöldverður á Norðurlandi – verð samtals 69.651 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurN1Pylsutilboð2.768
LaugardagurRub234 rétta ævintýraferð um eldhúsið, sushi-platti23.970
SunnudagurSubwayFjölskyldutilboð3.999
MánudagurAkureyri Fish and ChipsFiskur og franskar7.230
ÞriðjudagurDominos PizzaHópatilboð4.990
MiðvikudagurGreifinnKjúkingafajitas, BBQ-rif og 2 x hawaii-pizzur13.900
FimmtudagurHamborgarafabrikkan2 x fabrikkuborgari, 2 x El Fabrikanó, 2 x sjeik12.794

 

Vika á Norðurlandi – meðaltalskostnaður 512.617 krónur

Samtals:
Tjaldstæði, afþreying, bensín og matur339.926
Hótel, afþreying, bensín og matur578.592
Gistiheimili, afþreying, bensín og matur524.207
Orlofshús, afþreying, bensín og matur607.744

 

Vesturland

Gisting á Vesturlandi

GististaðurInnifaliðVerð
Tjaldsvæði AkureyriRafmagn og gistináttaskattur20.650
Fosshótel3 stjörnu, 2 x 2 manna herbergi232.234
ComfortGistiheimili, 2 x 2 manna herbergi279.127
Vatnsás 10Orlofshús178.641

 

Afþreying á Vesturlandi – verð samtals 186.980 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurKraumaHefðbundinn aðgangur15.300
LaugardagurSæferðirSigling út í Flatey15.680
SunnudagurLáki ToursFuglaskoðun og sjóstangaveiði30.000
MánudagurLýsuhóll2 klst. reiðtúr72.000
ÞriðjudagurSund2 fullorðnir og 2 börn2.600
MiðvikudagurBuggy AdventureFjórhjólasafarí47.800
FimmtudagurSnorrastofa2 fullorðnir og 2 börn3.600

 

Fastur kostnaður á Vesturlandi – verð samtals 33.936 krónur

Matarkarfa25.000
Bensín8.936

 

Kvöldverður á Vesturlandi – verð samtals 66.380 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurMeistarinn4 x pepperóníbátur5.560
LaugardagurSjávarpakkhúsiðFiskborgari 2.590 og Gnocchi 3.150, 2 x minni skammtur fyrir börnin8.920
SunnudagurVeitingastaðurinn Hraun2 x bláskel úr Breiðafirði, 2 x fiskur dagsins15.600
MánudagurBjarnarhöfn Bistro2 x hákarlauggasúpa, 2 x grágæsaborgari13.000
ÞriðjudagurFinsens Fish and ChipsFiskur og franskar7.600
MiðvikudagurNarfeyrarstofa2 x Lambaborgari, 2 x Hólmaborgari10.400
FimmtudagurStykkið Pizzagerð2 x stórar pizzur5.300

 

Vika á Vesturlandi – meðaltalskostnaður 464.959 krónur

Samtals:
Tjaldstæði, afþreying, bensín og matur307.946
Hótel, afþreying, bensín og matur519.530
Gistiheimili, afþreying, bensín og matur566.423
Orlofshús, afþreying, bensín og matur445.937

 

Suðurland

Gisting á Suðurlandi

GististaðurInnifaliðVerð
Tjaldsvæði FlúðumRafmagn og gistináttaskattur23.000
Icelandair Flúðum3 stjörnu, 2 x 2 manna herbergi303.876
Klettar Tower IcelandGistiheimili, 2 x 2 manna herbergi463.551
Ból Holiday HomeOrlofshús167.491

 

Afþreying á Suðurlandi – verð samtals 187.900 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurJarðböð Fontana LaugarvatniHefðbundinn aðgangur9.600
LaugardagurRiding Tours South Iceland2 klst. reiðtúr52.000
SunnudagurHellisbúarnir2 fullorðnir og 2 börn6.000
MánudagurBlack Beach ToursFjórhjólasafarí, 1 klst.41.700
ÞriðjudagurSund2 fullorðnir og 2 börn2.600
MiðvikudagurDýragarðurinn Slakki2 fullorðnir og 2 börn2.000
FimmtudagurMidgard AdventureJeppaferð, 4 klst.74.000

 

Fastur kostnaður á Suðurlandi – verð samtals 33.936 krónur

Matarkarfa25.000
Bensín8.936

 

Kvöldverður á Suðurlandi – verð samtals 70.429 krónur

VikudagurÞjónustuaðiliInnifaliðVerð
FöstudagurVeitingastaðurinn Lindin4 x hreindýraborgarar11.600
LaugardagurFlúðasveppir Farmers Bistro4 x sælkerahlaðborð8.460
SunnudagurSkálholtsstaður2 x kjötsúpa, 2 x plokkfiskur7.970
MánudagurSubway SelfossiFjölskyldutilboð3.999
ÞriðjudagurIngólfsskáli2 x fiskur dagsins, 2 x andabringa18.600
MiðvikudagurHótel Geysir Bistro2 x saltfiskur, 2 x kjúklinganachos9.800
FimmtudagurÞrastarlundur2 x bernaiseborgari, 2 x ostborgari10.000

 

Vika á Suðurlandi – meðaltalskostnaður 531.744 krónur

Samtals:
Tjaldstæði, afþreying, bensín og matur315.265
Hótel, afþreying, bensín og matur596.141
Gistiheimili, afþreying, bensín og matur755.816
Orlofshús, afþreying, bensín og matur459.756

 

Forsendur

Fjögurra manna vísitölufjölskylda, 2 börn, 7 og 14 ára. Ferðast dagana 3.-10. júlí í sumar. Aðeins er reiknað með kvöldverði án drykkjarfanga. Morgun- og hádegisverður afgreiðist með matarkörfu úr matvöruverslun. Reynt var að finna sömu þjónustu í öllum landsfjórðungunum.

Í einhverjum tilvikum tókst það ekki þar sem verð voru ekki gefin upp á heimasíðum viðkomandi þjónustuaðila, þá var fundin sambærileg afþreying. Öll verð miðast við birt verð á heimasíðum þjónustuaðila, taka verður tillit til þess að margir koma til með að veita afslátt gegn gjafabréfi stjórnvalda og einhverjir eru byrjaðir að auglýsa sérstakan COVID-afslátt. Því er ljóst að sérstök Íslendingaverð eru í undirbúningi fyrir sumarið. Allir afþreyingar- og veitingamöguleikar fengnir út frá ábendingum á ferðavefsíðum viðkomandi landsfjórðunga.

Leitað var eftir gistingu á booking.com (leitarstaðir: Egilsstaðir, Akureyri, Stykkishólmur og Flúðir) og alltaf flokkað eftir lægsta verði. Ekið er í öllum tilvikum frá höfuðborgarsvæðinu á KIA Sorento 4×4-fjölskyldubíl með fellihýsi í afturdragi. Stuðst var við reiknivél Orkuseturs. Gera má ráð fyrir auknum bensínskostnaði vegna ferðalaga milli afþreyingar- og veitingastaða.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -