Þriðjudagur 23. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

Vill gera tannréttingar fríar: „Erum enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar vill að tannréttingar verði gerðar ókeypis fyrir börn og biður um þrýsting svo það geti orðið að veruleika.

Ágúst Ólafur Ágústsson

Þingmaðurinn fyrrverandi skrifaði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann minnist þess að í dag eru 10 ár liðin frá því að þáverandi velferðaráðherra og þáverandi formaður Tannlæknafélags Íslands skrifuðu undir samninga um ókeypis tannlækningar barna. Bætti hann því við að tannréttingar ættu einnig að vera ókeypis fyrir börn en Samfylkingin hefur um nokkurn tíma talað fyrir slíku á þingi. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Í dag eru 10 ár síðan Guðbjartur Hannesson, þáverandi velferðarráðherra og Kristín Heimisdóttir, þáverandi formaður Tannlæknafélag Íslands undirrituðu samninga um ókeypis tannlækningar barna. Það var mikið gæfuspor sem skipti fólk raunverulegu máli en ekki eru öll þingmál þannig. Núna er 5 ára fjármálaáætlun stjórnvalda ennþá ókláruð á Alþingi.

Það væri óskandi ef núverandi þingmenn litu til framtíðar og til barna og tryggðu nú fé í að gera tannréttingar barna einnig ókeypis. Eins og allir vita geta tannréttingar barna hæglega kostað meira en milljón og því erum við enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra þegar kemur að þessari heilbrigðsþjónustu.
Eitt veit ég, að ekkert gerist á sjálfu sér á Alþingi og skiptir því allur þrýstingur í þessa átt miklu máli.
Hér ættum við öll að geta verið sammála.“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar svaraði Ágústi: „Við höldum áfram að leggja málið fram Ágúst – en þurfum greinilega að komast í stjórn til að þetta verði að veruleika. Amk virðist lítill áhugi hjá stjórnarliðum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -