Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Vítalía gefur skýrslu hjá lögreglu

Vítalía gefur skýrslu hjá lögreglu

Vítalía Lazareva hefur gef­iið skýrslu hjá lög­reglu vegna kæru sinnar á hendur þeim Þórði Má Jóhann­essyni, Hregg­viði Jónssyni og Ara Edwald.

Lögmenn mann­anna þriggja lýstu því yfir við fjöl­miðla nýverið að engin kæra hefði verið lögð fram gegn þeim vegna meints kyn­ferð­is­brots í sum­ar­bú­stað í Skorra­dag í des­em­ber árið 2020. Þetta sögðu lög­menn­irnir í kjöl­far þess að menn­irnir kærðu þau Vítalíu og Arnar Grant fyrir til­raun til fjár­kúg­unar. Áður hafði komið fram að Vítalía Lazareva hefði lagt fram kæru á hendur mönn­unum en væri ekki búin að fara í skýrslu­töku.

Mikið fjaðrafok varð í fjöl­miðlum eftir að menn­irnir þrír lögðu fram kæru sína og síðar eftir að full­yrt var að engin kæra á hendur þeim vegna kyn­ferð­is­brots lægi fyrir. Vítalía lýsti því yfir á Twitter að hún hefði ekki vitað betur en að málið væri í ferli; að hún hefði fyllt út form vegna máls­ins og farið yfir mála­vexti, skrif­lega.

Samkvæmt heim­ildum gaf Vítalía form­lega skýrslu vegna máls­ins síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Vítalía Lazareva kom fram í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur í jan­úar síð­ast­liðnum og lýsti þar meðal ann­ars kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagð­ist hafa orðið fyrir af höndum þriggja þjóð­þekktra, áhrifa­manna í sam­fé­lag­inu, í sum­ar­bú­stað sem hún var stödd í með þáver­andi kærasta sínum, Arnari Grant. Hún nafn­greindi menn­ina ekki í þætt­inum en hafði þó gert það á Instagram í októ­ber á síð­asta ári. Málið fór hátt í fjöl­miðlum og að end­ingu stigu þeir Þórður Már Jóhann­es­son, Hregg­viður Jónsson og Ari Edwald allir til hliðar eða hættu í stöðum sínum; Þórður Már sem stjórn­ar­for­maður Festar, Hregg­viður úr stjórn Veritas og Ari sem fram­kvæmda­stjóri Ísey útflutn­ings.

Áður hefur komið fram að þögg­un­ar­samn­ingar hafi verið á borð­inu í máli Vítalíu og þre­menn­ing­anna. Þeir voru sagðir hafa viljað ljúka mál­inu utan dóm­stóla og greiða Vítalíu ákveðna upp­hæð fyrir það. Í kæru þeirra á hendur þeim Vítalíu og Arnari Grant kemur fram að þau hafi reynt að knýja fram 150 millj­ónir vegna máls­ins. Stundin greindi fyrst frá mál­inu.

Arnar Grant kom fram í við­tali við RÚV síð­ast­lið­inn föstu­dag og sagð­ist þar hafna öllum ásök­unum mann­anna um fjár­kúgun. Hann hafði áður sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði kæru mann­anna frá­leita til­raun til þess að afvega­leiða umræð­una. Hann sagði einnig að um væri að ræða til­raun til þess að draga úr trú­verð­ug­leika hans sjálfs sem lyk­il­vitnis í máli Vítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi