Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Íris þverneitar ásökunum um einelti: „Þessar ásakanir eru tilhæfulausar og órökstuddar með öllu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í grein Mannlífs í gær var sagt frá því að Andrés Þorsteinn Sigurðsson yfirhafsögumaður Vestmannaeyjahafnar hafi sagt starfi sínu lausu vegna meints eineltis í garð hans af hálfu Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.

Mannlíf náði tali af Írisi og spurði hana hvort það væri satt að Andrés Þorsteinn Sigurðsson yfirhafsögumaður Vestmannaeyjahafnar hafi sagt starfi sínu lausu vegna meints eineltis hennar í garð hans.

Íris var ákveðin í svörum sínum og sagði ásakanir Andrésar á hendur sér vera ósannar og hreinar dylgjur og rangindi:

„Þessar ásakanir eru tilhæfulausar og órökstuddar með öllu,“ segir Íris og bætir við:

„Viðkomandi starfsmaður var meðal umsækjenda um starf hafnarstjóra fyrr á árinu, en fékk ekki starfið. Framkvæmda- og hafnarráð réð annan einstakling í starfið, sem það mat hæfari en Andrés.“

- Auglýsing -

Íris tekur með öllu fyrir að hún hafi á einhvern hátt komið nálægt ráðningarferlinu:

„Ég kom hvergi nálægt því ferli, enda er það ekki á verksviði bæjarstjóra. En í kjölfar þess að hann fékk ekki starfið virðist hann hafa ákveðið að ráðast að mér persónulega með órökstuddum dylgjum sem ég vísa algjörlega á bug,“ sagði Íris að lokum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -