Föstudagur 29. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Ísland í 20. sæti í mælingu á samkeppnishæfni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ísland hoppar upp um fjögur sæti milli ára í samkeppnishæfniúttekt IMD sem kynnt var á fundi Viðskiptaráðs og Íslandsbanka í morgun. Ísland er nú í 20. sæti af þeim 63 ríkjum sem úttektin nær til. Ísland lækkaði um fjögur sæti í fyrra.

„Í fyrra var niðurstaðan nokkur vonbrigði þar sem Ísland hafði skriðið upp listann fjögur árin þar á undan. Það má því segja að vonir hafi glæðst á ný,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs.

Á fundi Viðskiptaráðs og Íslandsbanka í morgun kom fram að Ísland hækkaði í öllum meginþáttum úttektarinnar en er þó enn alls staðar undir meðaltali hinna Norðurlandanna. „Þegar kemur að efnahagslegri frammistöðu fer Ísland upp um þrjú sæti í það 54. að þessu sinni. Meiri hagvöxtur en í öðrum ríkjum skýrir þá þróun að miklu leyti. Skilvirkni hins opinbera eykst einnig milli ára og fer Ísland þar upp um eitt sæti og ræður þar miklu jákvæðara mat stjórnenda á stofnanaumgjörð. Skilvirkni atvinnulífsins batnar milli ára og situr Ísland nú í 19. sæti, þökk sé m.a. aukinni framleiðni og bættum stjórnarháttum. Loks hækkar Ísland um fjögur sæti og upp í það 13. í samfélagslegum innviðum þar sem margir ólíkir þættir spila saman.“

Viðskiptaráð segir að aukin samkeppnishæfni náist með stefnumótun atvinnulífs og stjórnvalda og getunni takast á við áskoranir, hlúa að styrkleika og bæta úr veikleikum. „Umbætur í skattamálum, endurskoðun stuðningskerfis nýsköpunar, lækkun vaxta og bætt viðskiptatengsl við umheiminn eru á meðal þess sem myndi stuðla að aukinni samkeppnishæfni.“

Breytingar og órói í alþjóðastjórnmálum og -viðskiptum lita niðurstöðurnar í ár. Bandaríkin, sem trónuðu á toppi listans í fyrra falla um tvö sæti og víkja fyrir Singapúr sem kemst aftur á toppinn. Hong Kong stendur í stað í öðru sæti en Sviss fer upp um eitt sæti og endar í því fjórða. Holland lækkar um tvö sæti úr fjórða í það sjötta.

Ísland stendur Norðurlöndunum enn nokkuð að baki og má þar meðal annars telja smæð hagkerfisins, stofnanir og tækniinnviða meðal áhrifaþátta. Danmörk er enn efst af Norðurlöndunum og lækkar um tvö sæti (8. sæti), Svíþjóð er næst og stendur í stað (9. sæti). Noregur fellur um þrjú sæti (11. sæti). Finnland fer upp um eitt sæti, úr 16. í 15. og sem fyrr segir er Ísland neðst af Norðurlöndunum í 20. sæti.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -