Laugardagur 2. nóvember, 2024
3.3 C
Reykjavik

Ísland sendir 46 manns á loftslagsráðstefnu – Ferðalagið kostar rúmlega milljón krónur á mann

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslensk sendi­nefnd­ sem mætir á aðilda­ríkjaþing lofts­lags­samn­ings Sam­einuðu þjóðanna í Bakú í Aser­baís­j­an, COP29, verður skipuð 46 full­trú­um. Í þeim hópi er 10 manna op­in­ber sendi­nefnd auk full­trúa fé­laga­sam­taka. Þar verða ungir um­hverf­issinnar og nátt­úru­vernd­ar­sam­tök. Alþingismenn og ráðherrar verað ekki með í för vegna kom­andi alþing­is­kosn­inga. Þar sparast væntanlega tugmilljónir króna. Morgunblaðið segir frá þessu í dag og byggir á svari frá umhverfisráðuneytinu. Guðlaugur Þór Þórðarson er umhverfisráðherra og ber ábyrgð á málaflokknum. Hann situr heima eins og aðrir stjórnmálamenn.

Kostnaður við hvern og einn fulltrúa nemur á bilinu 760 þúsund krónum til 1,8 milljón. Ef tekin er miðlæg tala er kostnaður á mann um 1,3 milljónir. Fyrir allan hópinn er heildarkostnaður þannig rúmlega 50 milljónir króna.

Af 10 manna op­in­berri sendi­nefnd Íslands eru fimm full­trú­ar um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðuneyt­is­ins, þrír full­trú­ar frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu, einn frá Um­hverf­is­stofn­un og einn frá Ung­mennaráði Íslands. Tveir full­trú­anna sækja fund­inn alla dag­ana, en stærst­ur hluti sendi­nefnd­ar­inn­ar tek­ur aðeins þátt í hluta fund­ar­ins. End­an­leg­ur kostnaður liggi ekki fyr­ir fyrr en eft­ir að þing­inu lýk­ur.

Listinn yfir þátttakendur er langur, samkvæmt Morgunblaðinu. Frá um­hverf­is­ráðuneyt­inu fara Helga Barðadótt­ir, Magnús Agnes­ar Sig­urðsson, Stefán Guðmunds­son, Stein­unn Sig­urðardótt­ir og Elín Björk Jón­as­dótt­ir. Frá ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu fara Elín Rósa Sig­urðardótt­ir, María Erla Mar­els­dótt­ir og Bryn­hild­ur Sör­en­sen. Nicolle Kell­er verður full­trúi Um­hverf­is­stofn­un­ar og Vikt­or Pét­ur Finns­son frá Ung­mennaráði Íslands. Um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðuneytið styrk­ir full­trúa ung­menna til þátt­töku á fund­in­um.

Tinna Hall­gríms­dótt­ir fer fyr­ir hönd Seðlabank­ans, Hrefna Guðmunds­dótt­ir og Laura Sól­veig Lefort Scheefer eru full­trú­ar ungra um­hverf­issinna. Þor­gerður M. Þor­bjarn­ar­dótt­ir fer fyr­ir Land­vernd. Nótt Thor­berg, Hans Orri Kristjáns­son og Vikt­oría Al­freðsdótt­ir fara fyr­ir Green by Ice­land, Rík­h­arður Rík­h­arðsson er full­trúi Lands­virkj­un­ar, Edda Sif Pind Ara­dótt­ir frá Car­bfix, Helga Jó­hanna Bjarna­dótt­ir og Birta Krist­ín Helga­dótt­ir fara fyr­ir Eflu, Car­ine Chateney og Eg­ill Viðars­son fara fyr­ir Verkís, Árni Hrann­ar Har­alds­son og Hjálm­ar Helgi Rögn­valds­son fara fyr­ir Orku nátt­úr­unn­ar, Bjarni Her­rera fer fyr­ir Accrona, Kristjana María Kristjáns­dótt­ir og Carol­ine Ott fara fyr­ir CRI, Arna Páls­dótt­ir og Snorri Þorkels­son frá Orku­veit­unni, Lotte Rosen­berg frá Car­bon Recycl­ing In­ternati­onal, Adri­an Matt­hi­as Siegrist frá Cli­meworks og Sandra Ósk Snæ­björns­dótt­ir frá Car­bfix.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -