Föstudagur 14. febrúar, 2025
4.8 C
Reykjavik

Íslendingar höfðu sennilega lækningu við COVID frá upphafi – Lýsi tortímir veirunni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrstu niðurstöður íslenskra vísindamanna undir forystu Einars Stefánssonar, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands, virðast benda til þess að fríar fitusýrur, sem er að finna í lýsi, eyðileggja kórónuveiruna á skömmum tíma. Ef þetta reynist rétt þá má segja að Íslendingar hafi haft lækninguna við COVID auðfáanlega í næstu verslun frá upphafi faraldsins.

Fiskifréttir greina frá þessu en Einar benti fyrst í mars á að lýsi gæti nýst í baráttunni við Covid-19. Rannsóknin nú var gerð af bandarískum samstarfsaðilum og sýndi hún að lýsi með bæði 1 prósent og 2 prósent hlutfalli af fríum fitusýrum hafi eyðilagt 99,9 prósent kórónuveirunar á um tíu mínútum.

Einar og samstarfsmenn hans hafa fengið samþykki vísindasiðanefndar fyrir rannsókn á áhrifum þessa efnis á menn. Innan skamms hefst rannsókn á Landspítalanum þar sem sýktum landsmönnum verður gefið lýsi með hærra hlutfalli frírra fitusýra.

„Við munum mæla hvort lýsið dragi úr veirumagni í munnholi og hálsi. Úrtakið er ekki stórt en nægir þó til þess að gefa vísindalegt svar,“ segir Einar í samtali við Fiskifréttir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -