Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Íslenska ríkið sýknað af millj­arðs króna kröfu hóps fyrr­ver­andi land­eig­enda á Geys­is­svæðinu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslenska ríkið var í gær sýknað af rúmlega milljarða króna kröfu hóps fyrrverandi landeigenda á Geysissvæðinu.

Kröfunni hafði verið hafnað fyrir héraðsdómi, en áfrýjendur og íslenska ríkið áttu land í óskiptri sameign á Geysissvæðinu.

Í byrjun október árið 2016 sömdu áfrýjendur og ríkið um kaup ríkisins á eignarhlut hinna og stóð hann ríkinu til ráðstöfunar frá þeim degi.

Í kaupsamningnum var ákveðið að leggja það í mat matsmanna að finna sanngjarnt kaupverð landspildunnar og samkvæmt yfirmatsgerð frá apríl árið 2019, komst meirihluti yfirmatsmanna að þeirri niðurstöðu að sanngjarnt kaupverð fyrir landið væri 1.009.278.000 krónur.

Í niðurstöðukafla matsgerðarinnar er sagt að ef kaupverðið væri framreiknað miðað við breytingar á byggingarvísitölu frá kaupsamningsdegi til dagsetningar yfirmats væri kaupverðið alls 1.100.113.020 krónum.

Einnig kom þar fram að kaupverðið skyldi bera almenna vexti samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu frá kaupsamningsdegi til greiðsludags.

- Auglýsing -

Áfrýjendur höfðu byggt málatilbúnað sinn á því að í niðurstöðu meirihluta yfirmatsmanna fælist að kaupverð landspildunnar yrði verðbætt og vaxtareiknað með þessum hætti.

Ríkið væri þá bundið við þá niðurstöðu samkvæmt ákvæðum kaupsamningsins.

Í dómi Landsréttar kemur fram að í kaupsamningi aðila hefði ekki verið kveðið á um greiðslu vaxta eða verðbóta af kaupverði – en fyrirsjáanlegt hefði verið við frágang kaupsamningsins að umtalsverður tími kynni að líða þar til endanleg matsgerð lægi fyrir.

- Auglýsing -

Talið var að ef áfrýjendur teldu sig eiga rétt til greiðslu verðbóta eða vaxta hefði þeim borið að eiga frumkvæði að því að kveðið yrði á um það í samningnum og hið sama var talið gilda um viðmiðunartíma verðmatsins; ef þeir teldu að hann ætti að vera annar en afhendingartími landspildunnar.

Eins og málinu væri háttað hefði verið óvíst hvort samkomulag um slíkt hefði náðst, ef á það hefði reynt.

Sýkna héraðsdóms var því staðfest.

Krafa þessi var gerð í nafni Suðurgafls ehf., Sigríðar Vilhjálmsdóttur, Þóris Sigurðssonar ehf., Hrannar Greipsdóttur, Sigurðar Hauks Greipssonar, Minningarsjóðs Ársæls Jónssonar, Svövu Loftsdóttur, Mörtu Loftsdóttur, Péturs Guðfinnssonar, Margrétar Sigríðar Pálsdóttur og Ingu Ingibjargar Guðmundsdóttur.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -