Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Jaðrar við misbeitingu á valdi: „Ráðamenn skilja ekki alveg“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Þarna er ráðherra að túlka þessa heimild til að færa fólk innan stjórnsýslunnar sem svo, að hún geti bara skipað hvern sem er úr stjórnsýslunni, í hvaða starf sem er. Það er að mínu mati ekki réttur skilningur á þessu. Ég held að það sé, alveg burt séð frá hvaða hæfileika og reynslu þessi tiltekni einstaklingur kann að hafa. Þá er það alveg rosalega varhugavert og jaðrar við misbeitingu á valdi,“  segir Jón Ólafsson prófessor við Hugvísindasvið HÍ í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld.
Harpa Þórsdóttir, nýr þjóðminjavörður og Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Mynd/stjórnarráðið
Jón segir að ákvörðun Menningarmálaráðherra að ráða þjóðminjavörð án auglýsingar jaðri við misbeitingu á valdi. Til að byggja upp traust þurfi að gæta sanngirni, hvaða möguleika fólk hefur til dæmis á því að keppa um æðstu stöður samfélagsins.

Nokkur fagfélög hafa undanfarna daga gagnrýnt ákvörðun menningar- og viðskiptaráðherra um að ráða Hörpu Þórisdóttur í embætti þjóðminjavarðar án þess að auglýsa starfið. Meðal annars Félag fornleifafræðinga og Félag íslenskra safna og safnmanna.

Ráðamenn skilja ekki alveg að það þarf að vinna með samfélaginu

Í tilkynningu kemur fram að ráðherra hafi nýtt heimild um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að flytja embættismenn milli stofnana.

Jón var formaður starfshóps sem skipaður var af forsætisráðherra um hvernig væri hægt að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu.

„Það grefur undan trausti almennings á stjórnvöldum, þegar ráðamenn skilja ekki alveg að það þarf að vinna með samfélaginu. Ekki bara ákveða fyrir samfélagið hvernig hlutirnir eiga að vera. Það sem er svo mikilvægur hluti af því að byggja upp traust, er gagnsæi og sanngirni í því hvaða möguleika fólk hefur. Þar á meðal um að keppa um æðstu stöður samfélagsins.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -