Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði í fótbolta, lést sjötugur að aldri síðastliðinn sunnudag. Jóhannes lék með stórliði Celtic í Skotlandi á áttunda áratugnum og var hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins. Allir helstu miðlar Bretlands hafa fjallað um andlát þessa frábæra knattspyrnumanns.
Systir Jóhannesar, Anna Eðvaldsdóttir, greinir frá því á samfélagsmiðlum að Jóhannes hafi látist á sjúkrahúsi í Glasgow eftir að hafa smitast af COVID á spítalanum. Hann náði sér aldrei eftir það. Anna segir:
„Blessuð sé minning hans. Hans er sárt saknað.“
Halldór Einarsson, oft kenndur við Henson var góður vinur Jóhannesar. Hann greinir frá því að Jóhannes hafi búið í 45 ár í Skotlandi og eignast þar yndislega fjölskyldu.
„„Það er með sorg í hjarta sem ég kveð mjög góðan vin Jóhannes Edvaldsson. Big Shuggie eins og hann var gjarnan kallaður var mjög vinsæll meðal stuðningsmanna Celtic og Motherwell, liðunum sem hann lég með í Skotlandi. Búbbi var baráttujaxl en veikindin sóttu á og hann tapaði baráttunni, sunnudaginn 24. janúar.“
Þá segir Halldór einnig að fjárhagsstaða fjölskyldunnar í Skotlandi sé ekki beysin. Halldór segir:
„Staðan er slæm og þess vegna sendum við vinir Búbba og fjölskylda á Íslandi ákall til þeirra sem vilja og geta rétt hjálparhönd á erfiðum tímum. Allt hjálpar. Með vinsemd, þakklæti og bestu kveðjum.“