Föstudagur 17. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Jóhannes stjörnunuddari kominn til Íslands og heldur til á Vatnsleysuströnd

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Eins og Mannlíf greindi frá í dag þá hefur Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, eða Stjörnunuddarinn, nýlega hafið starfsemi í Svíþjóð.
Fimmtán konur kærðu Jóhannes fyrir nauðganir og önnur kynferðisbrot og voru tíu þeirra látin niður falla þar sem þau þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Ákærur voru lagðar fram í fjórum málum og í janúar síðastliðinn var Jóhannes dæmdur í fangelsi fyrir að hafa nauðgað fimm konum.
Jóhannes hlaut fimm ára dóm í ársbyrjun fyrir nauðganir, en býður nú upp á nudd í Svíþjóð.
Jóhannes hefur auglýst þá þjónustu sem hann býður upp á og hefur sænska blaðið Aftonbladet fjallað um það.

 

Í frétt Aftonbladet kom fram að ítrekað hafi verið reynt að ná tali af Jóhannesi, en árangurs.

Áfrýjun fimm ára fangelsisdóms Jóhannesar er á dagskrá í Landsrétti í þessum mánuði, en Jóhannes áfrýjaði  dómnum og neitar ásökunum.

Mannlíf hefur öruggar heimildir fyrir því að Jóhannes sé kominn til Íslands á nýjan leik.

Samkvæmt sömu heimildum heldur Jóhannes til á Vatnsleysuströnd í Breiðgerðislandi, skammt frá kastala Stormskers.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -