Föstudagur 29. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Jólunum eiginlega aflýst í nýjum reglum – „Geymum kossa til betri tíma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú er ljóst að jólin verða með óhefðbundum hætti í ár vegna COVID. Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa gefið út tilmæli um hvað skal hafa í huga yfir hátíðarnar. Það verður að segjast að þær leiðbeiningar hljóma ekki eins og uppskrift af hátíðlegum jólum. Landsmenn eru hvattir til þess að sleppa öllum söngvum og faðmlögum, svo nokkuð sé nefnt. Það verður raunar ekki horft fram hjá því að jólunum hafi verið aflýst.

Leiðbeiningarnar birtast á vefnum COVID.is. „Aðventan er gengin í garð og undirbúningur hátíðanna nær fljótlega hámarki. Rík hefð er fyrir því að fólk komi saman og njóti samverunnar og alls þess sem hátíðarnar hafa upp á að bjóða. Fyrir mörg okkar verður þessi tími frábrugðinn því sem við erum vön líkt og með annað á þessu ári. Samt sem áður höfum við ýmsa möguleika á því að gleðjast saman. Sumar athafnir fela í sér meiri áhættu en aðrar og þessar leiðbeiningar innihalda ráðleggingar um það hvernig gott sé að haga málum yfir hátíðarnar,“ segir i inngangi.

Því næst er talin upp nokkur atriði sem landsmenn skulu hafa í huga: „Njótum rafrænna samverustunda. Eigum góðar stundir með heimilisfólkinu. Veljum jólavini (hverja við ætlum að hitta yfir hátíðarnar). Hugum að heilsunni og stundum útivist í fámennum hópi. Verslum á netinu ef hægt er. Verum tilbúin með innkaupalista þegar farið er að versla. Kaupum máltíðir á veitingastöðum og tökum með heim. Ef við finnum fyrir einkennum sem bent geta til COVID-19 þá er mikilvægt að vera heima, fara í próf og vera í einangrun þar til niðurstaða liggur fyrir.“

Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra leggjast alfarið gegn jólasöng. Það kemur fram í þeim tilmælum er varða heimboð: „Látum gesti vita um boðið með góðum fyrirvara svo þeir hafi tækifæri til að fara varlega dagana fyrir boðið. Fylgjumst með þróun faraldursins. Virðum fjöldatakmarkanir og tryggjum nándarmörk og einstaklingsbundnar smitvarnir. Forðumst samskotsboð („pálínuboð“) og hlaðborð. Geymum handabönd, faðmlög og kossa til betri tíma. Hugum að loftræstingu og loftum út á meðan á boðinu stendur. Bjóðum upp á grímur ef gestir kjósa, þvoum hendur og sprittum okkur reglulega. Takmörkum sameiginlega snertifleti og þrífum þá oft og reglulega. Notum grímu og þvoum okkur reglulega um hendur á meðan við útbúum matinn, berum hann fram og göngum frá. Takmörkum fjölda fólks í eldhúsinu eða þar sem maturinn er útbúinn og gengið er frá eftir matinn. Takmörkum notkun á sameiginlegum áhöldum, svo sem tertuhnífum, kaffikönnum, mjólkurkönnum og svo framvegis. Þvoum allt tau eftir hvert boð, svo sem dúka og tauservíettur. Forðumst söng og hávært tal, sérstaklega innandyra.‍“

Tilmælinu eru lengri og má lesa þau í heild sinni hér. Gleðileg jól!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -