Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Jón Ármann vill grafa upp óþekkta sjómanninn: „Var líkið Geirfinnur?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Ármann Steinsson skrifar áhugaverðan pistil sem birtist á Vísi þar sem hann kallar eftir því að minnisvarði helgaður „Óþekkta sjómanninum“ verði grafinn upp og borinn verði kennsl á líkið sem þar var jarðað.  Hann fer yfir sögu minnisvarðans í pistlinum:

„Á vormánuðum 1980 var Hásteinn ÁR-8 á humarveiðum suð-austur af Vestmannaeyjum. Það var rjómalogn og sléttur sjór þegar skipverjar drógu inn trollið og tæmdu pokann á dekkið. Innan um humarinn sást glitta í tvö vaðstígvél, og þegar betur var að gáð neðri helming af mannslíkama klæddan í gallabuxur með leðurbelti um mittið. Nálykt fyllti lognið og skipverjar brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu með loki. Þá var haldið til hafnar í Eyjum þar sem lögreglan beið á kæjanum.“

Hann segir lögregluna ekki hafa rannsakað þetta nægilega vel. „Hér gæti frásögnin endað ef ekki væri fyrir það að einskiss manns var saknað og engin tilraun var gerð, hvorki fyrr né síðar, til að finna út hver þessi óþekkti sjómaður væri. Af því beltið var með silfursylgju gat lögreglan sér til að hér væri um útlending að ræða. Þá var ómögulegt að segja til um hversu lengi útlendingurinn hafði hvílt í sjó. Þar með endaði lögreglurannsóknin,“ segr Jón og heldur áfram:

„Víkur nú sögunni til Vestmannaeyja þann 20 nóvember 1974. Þrír menn komu til eyja, og tveir þeirra fóru þaðan aftur, og eftir það spurðist ekkert til hins þriðja. Já, þetta hljómar eins og saga um ekki neitt, en engu að síður varð þessi heimsókn til þess að endurupptaka Geirfinnsmálsins tók vinkilbeygju árið 2016. Lögreglan yfirheyrði mennina tvo og fyrrum lagskonu annars þeirra en ekkert kom út úr því. Svo var pælt í hvort og hvernig Geirfinnur gæti hafa komið til Eyja daginn eftir að hann hvarf í Keflavík, og ef þriðji maðurinn var ekki sjálfur Geirfinnur, hver var hann þá, og hvað varð svo um þriðja manninn?“

Hann veltir því fyrir sér hvort líkið sé jafnvel Geirfinns. „Gróusögurnar lognuðust brátt útaf enda engin svör. Í millitíðinni finnst sjórekið lík árið 1980 sem enginn veit deili á en engin gróusaga verður til úr því hráefni; Var líkið Geirfinnur? Var þarna fram kominn þriðji maðurinn? Eða bara einhver óþekktur útlendur sjómaður? Í algjöru upplýsingatómi um þennan meinta óþekkta sjómann tók stýrimaður Hásteins sig til og hóf fjársöfnun. Sá var frá Stokkseyri og bar sterkar taugar til kirkjunnar á staðnum. Taldi hann plássinu til bóta ef líkið yrði jarðað þar og reistur minnisvarði helgaður „Óþekkta sjómanninum“. Fjársöfnunin gekk vonum framar og minnisvarðinn er Stokkseyringum og kirkjugarðinum til sóma,“ segir Jón.

Hann bendir á að DNA-rannsóknir gætu hæglega upplýst málið. „Eftir jarðsetningu með viðhöfn virðast allir hafa sætt sig við að um væri að ræða „varanlega óþekktan sjómann“ og algjör óþarfi að finna út hver hann væri. Skítt með tilkomu DNA sem gæti sýnt ættartré í báða ættliði um aldir og jafnvel birt nafn hans í leitarniðurstöðum á netinu. Þá er eflaust einhversstaðar fjölskylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ættingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit?,“ spyr Jón.

- Auglýsing -

Hann vonast til þess að skrif sín veki athygli hjá kennslanefnd. „Þá er komið að lausn gátunnar, eða í það minnsta formálanum að lausninni. Á rykfallinni skrifstofu inni í íslenska ríkisbákninu situr embættismaður og les vefblöðin, þessa sömu grein og þú ert að lesa núna hér á Vísi. Þessi embættismaður er samviskusamur með afbrigðum og beintengdur hinni stórmerkilegu Kennslanefnd. Nefndin sú hefur ekki mikið fyrir stafni dags daglega og virðist ekki knúin af frumkvæðisáráttu heldur bíður skipana að ofan. En þessi embættismaður okkar hefur bæði faglegan metnað og auk þess persónulegan áhuga á Geirfinnsmálinu. Hann tekur snarlega upp símann, hringir í formann nefndarinnar…

…og ef sá hinn sami svarar kallinu þá kemur kannski ný forsíðufrétt hér á vefnum síðar meir: Týndi sjómaðurinn er fundinn! Og nafnið hans og æviágrip fylgir, einnig viðbrögð ættingja og þakklæti þeirra til Kennslanefndar eftir áratuga vangaveltur. En því miður er hæpið að þetta verði forsíðufrétt um að Geirfinnur sé loks fundinn í ómerktri gröf á Stokkseyri, þökk sé Kennslanefnd.

En allt eru þetta innantómar spekúlasjónir nema formaður Kennslanefndar svari símanum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -