Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kári flissar að Guðrúnu Bergmann – Tengdi bólusetningar við Nasista: „Hef engin tengsl við Pfizer“

Guðrúnu Bergmann, heilsu- og lífsstíls­ráðgjafa, líst illa á bóluefni Pfizer, hvað þá heldur á þá hugmynd að nota Íslendinga sem tilraunadýr í rann­sóknum fyrir­tækisins. Hún spyr hvort Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir og aðrir sem að bólu­setningum koma hafi alveg gleymt hrotta­legum tilraunum Nasista á fólki í síðari heim­styrjöldinni. Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, gerir hins vegar lítið úr málflutningi Guðrúnar og flissar að vanga­veltum hennar. Þá kveðst Kári ekki tengjast Pfizer og segir að Bill Gates hafi komið honum fyrir sjónir sem pirrandi nörd, í þau tvö skipt sem þeir hittust.

Þetta kemur fram í pistli Guðrúnar sem hefur síðastliðna þrjá áratugi verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Hún hefur gefið út tugi bóka, haldið fyrir­lestra og námskeið og verið virt í sínu fagi. Guðrún bendir á að bóluefni Pfizer hafi ekki verið full­prófað á dýrum áður en prófanir voru færðar yfir á fólk. Þá segir hún að tilraunum lyfjarisans á bólu­efninu í fólki ljúki í raun ekki fyrr en árið 2023 og lyfið sé því enn á tilrauna­stigi. „Hafa sóttvarna­læknir og aðrir sem að málinu koma alveg gleymt Nurnberg siða­reglunum sem samþykktar voru árið 1947, eftir að upp komst um hrottalegar tilraunir á fólki í fanga­búðum Nasista?,“ spyr Guðrún.

„Kári og félagar hans í AMGEN eða BioNTech eru því litaðir af hagsmuna­tengslum þegar kemur að farsóttar­vörnum og bólu­setningum vegna Covid-19.“

Þá bendir Guðrún á að bóluefni Pfizer sé ekki bóluefni í eigin­legum skilningi því það eigi frekar að flokka sem gena­breytandi efni, það er efni sem breytir erfðaefni líkamans. Hún veltir því fyrir sér hvort efnið sé mögulega úlfur í sauðagæru. „Það er eðlilegt að spyrja svo, vegna þess að afar takmarkaðar upplýsingar hafa í raun fengist um það hvaða innihalds­efni eru í því og hvernig þau muni virka. Það liggur fyrir að bóluefnið frá Pfizer hefur að geyma ýmis efni sem valdið geta ófyrirsjáanlegu tjóni á líkama manna,“ segir Guðrún.

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hafa þrír Íslendingar sem nýlega voru bólu­settir vegna Covid-19 látist og hafa tilvikin verið tilkynnt til Lyfja­stofnunar sem alvarlegar aukaverkanir bóluefnis Pfizer. Bæði Rúna Hauks­dóttir Hvannberg forstjóri og Alma Möller land­læknir og segja þó allsendis óvíst að viðkomandi hafi látist vegna bólu­efnisins því um sé að ræða aldraða einstaklinga með ýmsa undir­liggjandi sjúkdóma.

Kári segir illa skilja hvernig Lyfja­stofnun og sóttvarnar­yfirvöld hafa tekið á þessum andlátum eftir bólu­setningarnar því þau hafi ekkert að gera með bóluefnið. Það verji fólk gegn Covid-19 en engum öðrum sjúkdómum. „Ég er rosalega hissa. Að meðaltali deyja í viku hverri svona 15-20 einstaklingar af dvalar- og hjúkrunar­heimilum. Það er fólkið í þessum hópi sem dó eftir að það var bólusett. Það var algjör­lega fyrir­sjáanlegt og engin leið að komast hjá því að nokkrir úr þeim hópi myndi deyja fyrstu vikuna, tölfræðin er þannig. Mér finnst þetta hafa verið höndlað illa og verið að gefa því byr undir báða vængi að þetta sé að einhverju leyti tengt,“ segir Kári.

Guðrún gagnrýnir hins vegar aðkomu Kára að farsótta­vörnum hérlendis og bólu­setningum. Það er vegna þess hversu litaður hann sé af hagsmuna­tengslum. „Munið þið þegar DeCode fór í gjaldþrot? Þá kom bandarískur fjár­festir og keypti bruna­rústirnar. Árið 2015 var það svo vinur Kára, sjálfur Bill Gates sem keypti DeCode, sem er nú dóttur­fyrirtæki AMGEN, sem Bill Gates á líka. Um tíma var AMGEN í samstarfi við Pfizer um fram­leiðslu á bóluefni, en svo virtist BioNTech hafa stokkið framfyrir AMGEN. Reyndar hafa sjóðir Bill & Melinda Gates verið stórir styrktar­aðilar BioNTech, svo og styrktar­sjóður AMGEN,“ segir Guðrún og bætir við:

„Upplýsingar um okkur Íslendinga sem safnað hefur verið af DeCode í gegnum tíðina, svo og niður­stöður úr skimunum hér á landi hafa því að öllum líkindum farið beint til móður­fyrir­tækisins í Banda­ríkjunum, þar sem menn telja sig geta læknað sjúkdóma með gena­breytingum eða náð stjórn á líkama fólks með því að bólusetja það með bóluefni með öreindum (nanoparticles). Kári og félagar hans í AMGEN eða BioNTech eru því litaðir af hagsmuna­tengslum þegar kemur að farsóttar­vörnum og bólu­setningum vegna Covid-19.“

Kári flissar að vanga­veltum Guðrúnar um hagmuna­tengsl sín við Bill Gates og vísar tengslum sínum við Pfizer jafnframt alfarið á bug. Á sama tíma viðurkennir hann ákveðna þröngsýni sína því hann geti einfald­lega ekki hlustað á þann þjóð­félagshóp sem mælir gegn bólu­setningum. „Þegar ég rekst á pistla eftir Guðrúnu Bergmann þá hef ég forðast þá. Samkvæmt henni er þetta bóluefni væntanlega uppspretta alls ills. Ég hef bara ekki áhuga á því sem hún og það fólk sem er á móti bólu­setningum segir. Ég verð að viðurkenna að í því felst ákveðin þröngsýni en ég er alveg sáttur við hana,“ segir Kári.

Aðspurður um meint hagsmuna­tengsl sín við lyfjarisann Pfizer í gegnum Bill Gates hafði Kári þetta að segja: „Ég hef akkúrat engin tengsl við Pfizer og á þar engra hagsmuna að gæta. Þar hefur hins vegar verið búið til besta bóluefni sögunnar og Guðrún lítur sjálfsagt á það sem ógn. Svona getur lífið stundum verið skringilegt. Fyrir­tækið sem ég vinn fyrir er keppinautur og það er svakaleg samkeppni þarna á milli. Þar er einmitt ástæðan fyrir því hversu litlar líkur eru á því að ég nái að sannfæra menn þar um að gera tilraunir á Íslandi. Af því ég vinn fyrir annað fyrirtæki hugsa þeir jafnvel frekar að hagsmunir liggi frekar í því að hundsa það sem ég segi,“ segir Kári og bætir við.

„Þessar vanga­veltur eru með ólíkindum. Ég hef aftur á móti tvisvar setið í pallborðs­umræðum með Bill Gates en ég hef engin tengsl við hann og þekki manninn ekki neit. Ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig hann notar fé sitt að berjast fyrir bólu­setningum í þriðja heiminum gegn allskonar sjúkdómum. Í þau tvö skipti sem ég hitti hann fannst mér hann samt vera frekar pirrandi nörd.“

Pistil Guðrúnar má finna í heilu lagi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið