Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Kennir krökkum búktal

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þjóðminjasafn Íslands og Reykjavík Kabarett, með Margréti Erlu Maack fremsta í flokki, sameina krafta sína og bjóða börnum á búktalsnámskeið sunnudaginn 24. júní frá 11 til 12.

Það er hin bandaríska Carla Rhodes sem kennir búktalstæknina en hún byrjaði að æfa sig í þessari ævafornu list þegar hún var níu ára gömul. Í dag er hún einn vinsælasti búktalari New York-borgar og var meðal annars tilnefnd til Andy Kaufman-grínverðlaunanna árið 2012.

Námskeiðið fer því fram á ensku en Margrét Erla sér um að túlka jafnóðum.

Á námskeiðinu verður farið í grunntækni búktals og eru krakkar hvattir til að koma með eigin bangsa, brúðu eða jafnvel bara sokk. Það má segja að búktal sé orðið vinsælt aftur, eftir nokkurn tíma í dvala, eftir að hin ellefu ára gamla Darci Lynne hrósaði sigri í hæfileikakeppninni America’s Got Talent síðastliðið haust en hæfileiki hennar var einmitt búktal.

Til að bæta á búktalarafjörið er vert að minnast á að Konni og ferðataskan hans eru á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins um þessar mundir en frægasta búktalaratvíeyki Íslands er án efa Baldur og Konni sem voru upp á sitt besta um miðbik síðustu aldar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -