Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar var kostnaður við dýpkun Landeyjahafnar mun meiri en gert var ráð fyrir. Höfnin opnaði í júlí árið 2010 en var stofnkostnaður hennar um þrír milljarðar króna, eða um það bil samkvæmt áætlun. Snemma kom í ljós að ráðast þurfti í dýpkunarframkvæmdir, sem urðu umfangsmeiri en gert var ráð fyrir.
Áætlaður kostnaður við dýpkun hafnarinnar var um 60 milljónir króna á ári en kom á daginn að kostnaðurinn, frá árinu 2011-2020, reyndist vera um 227-625 milljónir króna á ári. Þá gagnrýnir Ríkisendurskoðun að viðhaldsdýpkun hafi verið skráð sem fjárfestingakostnaður. Segir enn fremur í skýrslunni að nauðsynlegt sé að heildstæð úttekt verði gerð á Landeyjahöfn svo hægt sé að fá úr um það skorið hvað endurbætur kosti í stað viðhaldsdýpkunar.
Vísir greindi fyrst frá málinu en skýrslu Ríkisendurskoðunar má lesa hér.