Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Kristín Þorsteinsdóttir útgefandi Fréttablaðsins hættir störfum: „Ég hef unnið minn síðasta dag“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristin Þorsteinsdóttir útgefandi Fréttablaðsins og fyrrum aðalritstjóri hætti störfum þar í dag. Þetta segir hún í færslu á Facebook.

„Ég hef unnið minn síðasta dag og skrifað minn síðasta leiðara í Fréttablaðið. Ný stjórn hefur tekið við með nýju fólki og nýjum áherslum.“

Í bréfi sem Ingibjörg Pálmadóttir, stjórnarformaður og helmingseigandi í Torgi sem rekur Fréttablaðið, sendi á starfsmenn blaðsins í dag segir að starf útgefanda hafi einfaldast við sölu á eignum til Sýnar og hefur það því verið lagt niður í núverandi mynd. Allir rekstrarþættir starfsins færast til Jóhönnu Helgu Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins. Ingibjörg sjálf tekur við öðrum þáttum starfsins. Helgi Magnússon keypti helming Torgs í júlí.

Kristín hefur verið í veikindaleyfi undanfarna mánuði og kveður nú Fréttablaðið.

Segir hún í færslu sinni að þeir miðlar sem hún hefur stjórnað vitni um góðan árangur.

„Í rúm 5 ár, lengur en nokkur annar, stjórnaði ég fréttastofu 365 sem aðalritstjóri og útgefandi – þá stærstu fréttastofu landsins – og svo Fréttablaðinu eftir að fyrirtækinu var skipt upp, síðustu mánuði hef ég verið útgefandi. Þar áður sat ég í stjórn 365. Flestar kennitölur miðlanna, sem ég stjórnaði vitna um góðan árangur.“

Kristín rifjar upp starf sitt og segir dagana hafa verið dýrðlega:

- Auglýsing -

„Fréttir Stöðvar 2 náðu að velgja keppinautnum undir uggum – oft vorum við með meira áhorf en RUV, visir.is komst í fyrsta skipti yfir mbl.is undir minni stjórn, við gerðum frábæra hluti með nýjum áherslum og útliti Fréttablaðsins. Við breyttum skipuriti fréttastofunnar og gerðum hlut kvenna meiri en nokkru sinni. Um tíma voru flestir yfirmenn konur og stundum voru vaktirnar eingöngu skipaðar konum. Þetta voru dýrðlegir dagar.“

Kristín segir að lífið hafi þó ekki alltaf verið auðvelt. Reglulega hafi verið í sparnaðaraðgerðir.

„Við þurftum að velta hverri einustu krónu, enda höfðum við úr miklu minni peningum að spila en keppinautarnir.“

- Auglýsing -

Að lokum beinir Kristín orðum sínum til samstarfsmanna sinna:

„En ekkert af þessu hefði tekist án ykkar. Ég var svo heppin að hafa frábært starfsfólk mér við hlið, fólk sem hefur verið tilbúið að leggja meira á sig, en hægt hefur verið að ætlast til. Fyrir það vil ég þakka ykkur af öllu hjarta.

En nú skilur leiðir. Allt tekur enda. Vonandi tekur eitthvað nýtt og skemmtilegt við. Nóg er starfsorkan. Takk og gangi ykkur sem allra best.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -