Kristinn R. Ólafsson, leiðsögumaður og pistlahöfundur, flytur ekki góð tíðindi frá Spáni þar sem hann er búsettur. Hann segir Covid-ástandið í landinu fara sífellt versnandi og dauðföllin fjölga enn frekar.
Þetta kemur fram í færslu Kristins á Facebook þar sem hann talar, eins og svo oft áður, frá Madríd, höfuðborg Spánar. Þaðan flutti Kristinn pistla til margra ára við miklar vinsældir sem spilaðir voru í Síðdegisútvarpi Rásar 2. „Enn versnar þetta á Spáni: 34.291 smit og 404 dauðsföll síðasta sólarhring. 54.173 látnir allt í allt, nær 2,4 milljónir smita. Nýgengi komið í 714,“ segir Kristinn í færslunni.
Spánverjar vonast til að ná hjarðónæmi gegn kórónuveirunni í lok næsta sumars ef áætlanir um bólusetningu ganga eftir. Þá ætti tveir þriðju hluti landsmanna að vera bólusettir og hjarðónæmi náð, því flestir verða þá annað hvort verið bólusettir eða fengið veiruna. Heilbrigðisyfirvöld landsins hafa viðurkennt að haldin verði skrá yfir þá einstakling sem neita að láta bólusetja sig og þeirri skrá verður deilt með öðrum ríkjum Evrópusambandsins.
Fanney nokkur er ánægð með að heyra frá Kristni. „Alltaf fint að fá fréttir frá þér en þetta eru ekki góðar fréttir,“ segir Fanney.
Hildur vonar innilega að ástandið á Spáni fari að lagast. „Hrikalega alvarlegt ástand, vonandi eru bólusetningar hafnar,“ segir Hildur.
Það gerir Margrét líka. „Ömurlegar fréttir. Vonandi fer þetta ástand að batna,“ segir Margrét.