Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Kristján Loftsson kveður goðsögn: Mikið lán að hafa átt sam­leið með Rabba. Hann kveður okk­ur nú.

|
|

Rafn Magnús­son vél­fræðing­ur fædd­ist 25. febr. 1932 á Þránd­ar­stöðum í Kjós. Hann lést 15. febr. 2021 á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Ísa­fold í Garðabæ. 26. des­em­ber 1954 gift­ist Rafn eft­ir­lif­andi eig­in­konu sinni, Evu Guðmunds­dótt­ur frá Eystri-Mó­hús­um á Stokks­eyri. Eva og Rafn eignuðust þrjú börn, þau Vil­borgu, Krist­inn og Elsu.

Rafn eða Rabbi eins og hann var oft kallaður er hálfgerð þjóðsagna­persóna í sögu hvalveiða hér á landi. Það má segja að að veiðar á þessum skepnum hafi verið Rafni í blóð borið, fæddur og uppalinn í Hvalfirði. Og Rabbi og Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, voru bestu vinir og fylgdust lengi að. Á Hval 1 sumarið 1956 var Rabbi vélstjóri. Kristján var messi, aðeins 13 ára í sínum fyrsta túr og sá var hún ekki hár í loftinu. Hval­veiðar hafa því fylgt þessum tveimur mönnum stærstan hluta lífsins.

Rabbi starfaði hjá Hvali hf. yfir sumarið, frá árinu 1954 og var á veiðum heil sautján sumur. Þá fannst honum tími til kominn að hætta að stíga ölduna og fór í land og var einn starfs­manna í hval­veiði­stöðinni í Hvalfirði. Þó tók við nokkurt hlé, en þá vantaði hann gamla vin, Kristján Loftsson, vaktmann, til að hafa augu með hval­veiði­bátunum.

Hval­veiðar voru því stór hluti af lífi Rafns. Í samtali við Morgun­blaðið í október 2002 sagði hann:

„Þetta var voða­legt fútt meðan þetta var af fullum krafti. Það var unnið allan sól­ar­hring­inn og aldrei stoppað.“

Rafn var vélstjóri á hval­veiðiskipunum í 17 ár eða frá árinu 1954 til 1970. Árið 1990 varð hann svo vaktmaður skipanna, þar sem Hvalur 6,7,8 og 9 lágu við bryggju. Þá hafði Hvalur 1,2,3,4 verið grandað, enda gömul og úrelt skip en hvalur 5 endaði á safni í Þýska­landi.

Hvalfjörður hafði mótandi áhrif

Rafn ólst upp í Hvammsvík en hug­ur­inn stefndi til að vinna með vél­ar. Í minningar­grein Morgun­blaðsins segir að ekki sé ólík­legt að nánd við vél­búnað setu­liðsins í Hval­f­irði hafi mótað þann áhuga.

Rafn var yfir­vélstjóri hjá Hvali en færði sig árin 1970 til 71 í ál­ver­ið í Straums­vík. Rafn hóf störf sem smíða- og suðukenn­ari við Vél­skóla Íslands 1971 og starfaði við það þar til hann hætti störf­um árið 2001. Frá 1974 var Rafn stöðvar­stjóri í hval­stöðinni í Hval­f­irði á sumr­in. . Árið 2008 fékk Rafn heiðurs­merki sjó­mannadags­ráðs fyr­ir störf sín.

Forðast fjölmiðla

Faðir Kristjáns Lofts­sonar var einn þeirra sem stofnuðu Hval. Í viðtali sagði Kristján:

„Svo vann ég þarna og hef nú eig­in­lega hvergi verið ann­ar­staðar en þar.“

Kristján er ekki aðeins forstjóri Hvals held­ur einnig aðal­eigandi HB Granda. Þá á hann hlut í og situr í stjórnum ýmissa annarra félaga sem flest tengjast innbyrðis.

Kristján forðast helst fjölmiðla og veitir sjaldan viðtöl. Í nærmynd DV sagði að Kristján væri gjaf­mildur og góðhjartaður og þekktur fyrir að ausa fé til góðgerða­félaga án þess að gorta af því á opinberum vettvangi.

Þekkst frá unga aldri

Kristján hefur þekkt Rafn eða Rabba eins og þeir kölluðu hann ævinlega. Kynni þeirra ná langt aftur eða til ársins 1956. Rabbi er þá annar vélstjóri á Hval 1. Kristján Loftsson er messi, aðeins 13 ára gamall. Þetta er hans fyrsta frumraun til sjós. Hval­veiðar hafa fylgt Kristjáni í kringum 70 ár. Kristján segir:

„Næst vor­um við skips­fé­lag­ar á Hval 2 og Hval 7 sam­tals í fjór­ar hval­vertíðir, ég sem há­seti og Rabbi vél­stjóri.

Rabbi sagði mér að aðdrag­andi þess að hann réðst til Hval hf. var að skóla­bróðir hans í Vél­skól­an­um bað hann að leysa sig af í hálf­an mánuð í byrj­un hval­vertíðar 1954 sem 3. vél­stjóri á Hval 2.“

Umsvif minnkuðu

Rabbi var alla vertíðina og gott bet­ur hjá Hval hf. Starfaði hann á hinum ýmsu bátum Hvals þar til hann hætti á sjó árið 1970. Hann leysti þó af við og við ef mann vantaði á bát. Kristján Loftsson segir:

„Öll um­svif hjá Hval hf. minnkuðu auðvitað veru­lega er hval­veiðar hættu eft­ir vertíðina 1989 er hið svo­nefnda hval­veiðibann tók gildi. Áfram varð að líta eft­ir skip­un­um og sjá til þess að allt væri í lagi um borð. Fólst það m.a. í að snúa aðal­vél­inni og smyrja hana reglu­lega og margt fleira,“ segir Kristján.

Rabbi þekkti manna best hvern krók og kima í hval­bát­un­um svo hér var ekki kot vísað. Natni, vand­virkni og snyrti­mennska var Rabba í blóð bor­in er kom að eft­ir­liti og því sem þurfti að gera svo skip­in yrðu klár í slag­inn er kallið kæmi,“ Kristján og heldur áfram:

„Er það svo loks gerðist 2006 er Hval­ur 9 fór í stutta vertíð í lok sum­ars og veiddi sjö lang­reyðar, þá var skip og vél­búnaður í eins góðu ástandi og maður gat best á kosið eft­ir að hafa legið í Reykja­vík­ur­höfn síðan haustið 1989. Sam­visku­semi Rabba sýndi sig hér áþreif­an­lega.“

Rabbi hætti hjá Hval hf. Að eigin ósk sögum aldurs í lok árs 2006. Hann var þá 74 ára.

„Kom hann oft í kaffi til að ræða mál­in eins og geng­ur og ger­ist. […] Það var mikið lán fyr­ir Hval hf. að hafa fengið mann eins og Rabba til starfa hjá fé­lag­inu, mann sem kunni sitt fag og var úrræða­góður ef eitt­hvað bjátaði á,“ segir Kristján og bætir við:

„Þegar ég hugsa til baka þá var ég nú ekki hár í loft­inu 13 ára á Hval 1 en þar um borð var ein­vala áhöfn og marg­ir þeirra störfuðu hjá fyr­ir­tæk­inu í ára­tugi eins og Rabbi, enda leið mér vel þar og síðar til sjós með þeim,“ segir Kristján.

Góður vinur kvaddur

„Það hef­ur verið mikið lán fyr­ir mig per­sónu­lega að hafa átt sam­leið með Rabba í nær 65 ár er hann kveður okk­ur nú. Hann kenndi mér margt um gufu­vél­ar en þær þekkti hann eins og lóf­ana sína,“ segir Kristján um sinn gamla vin.

„Að leið­ar­lok­um vil ég fyr­ir mína hönd og fjöl­skyldu minn­ar senda Evu og fjöl­skyldu okk­ar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur.“

Útför Rafns fór fram frá Vídalíns­kirkju í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra