Lögregla hafði afskipti af tveimur konum í miðbænum í gærkvöld. Höfðu þær verið gómaðar við að stela vörum úr matvörubúð en var sleppt að lokinni skýrslutöku. Karlmaður neitaði að yfirgefa húsnæði í Árbænum í gærkvöldi þrátt fyrir að vera þar óvelkominn. Maðurinn hótaði lögreglu þegar hún mætti á vettvang og var því handtekinn og látinn gista fangaklefa.
Þá keyrði lögregla mann til síns heima eftir að hafa aðstoðað hann í Árbæ. Maðurinn var í mjög annaregu ástandi og lá ósjálfbjarga úti á víðavangi, líkt og segir í dagbók lögreglu. Einn ökumaður var stöðvaður í hverfi 108, enn á nagladekkjum. Þrír voru kærðir fyrir hraðakstur og sex stöðvaðir undir áhrifum vímuefna.