Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Landsliðið mætir Finnum í dag – Kristján Óli og félagar: „Ekki allur sannleikurinn komið fram“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristján Óli Sigurðsson kveðst hafa leitað svara hjá Vöndu Sigurgeirsdóttir formanni KSÍ um fjarveru Sverris Inga Ingasonar í landsliðinu. Um þetta var fjallað í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin í gær.

Þrír leikmenn gáfu ekki kost á sér í núverandi verkefni landsliðsins en liðið mætir Finnum síðar í dag.

Mikael Neville Anderson er að verða faðir en aðeins var sagt að persónulegar ástæður væru fyrir fjarveru Sverris og Guðlaugs Victors Pálssonar sem ekki gáfu kost á sér.

„Þú sendir skriflega spurningu á formann KSí, spurðir út í valið á landsliðshópnum. Það er enginn Sverrir Ingi, það var gefið upp að hann hefði ekki gefið kost á sér, Fékkstu svör,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason í þættinum um Sverrir Inga sem leikur með PAOK í Grikklandi.

Kristján Óli segist hafa fengið svar frá Vöndu. „Ég fékk svar, ég er gáttaður eftir þetta svar. Í svarinu stendur að þjálfari A-landslið karla velur leikmannahóp sinn og að honum hafi ekki verið bannað að velja tiltekna leikmenn í hópinn. Samkvæmt svarinu formanns KSÍ var Sverrir Ingi, besti hafsent Íslands ekki valinn í hópinn.“

Telja þeir félagar að ekki allur sannleikurinn í þessu máli hafi komið fram.

- Auglýsing -

Íslenska liðið mætir Finnum síðdegis og svo er æfingaleikur við Spán í næstu viku.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -