Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Leita morðvopnsins á Haukanesi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tíu manns hafa verið handtekin í tengslum við hrottalegt morð sem framið var um miðnætti síðastliðin laugardag, átta karlmenn og tvær konur. Hin handteknu eru af hinum ýmsu þjóðernum. Mannlíf hefur heimildir fyrir því að einn hinna handteknu eigi skammbyssu. Lögreglan útilokar ekki að fleiri en einn hafi verið að verki en einnig er til skoðunar hvort um sé að ræða deilur á milli tveggja einstaklinga.

Hinn myrti var Íslendingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann settist hér að annan jóladag árið 2014. Hann var giftur, átti eitt barn og annað á leiðinni og var íslenskur ríkisborgari. Eiginkona Armando og lítið barn þeirra voru inni í húsinu þegar Armando var myrtur.

Lögregla telur að morðinginn hafi notað skammbyssu með hljóðdeyfi og hann hafi setið fyrir Armando og hleypt af hátt í tíu skotum. Eitt skot hæfði Armando í hnakkann og nokkur í bakið.

Á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að lögregla hafi síðustu daga gert leit á um tuttugu stöðum, meðal annars í sumarhúsum, á heimilum og á íverustöðum á Norðurlandi og Suðurlandi. Á vef Fréttablaðsins er greint frá því að umfangsmikil leit hafi farið fram í húsgrunni á Arnarnesi, samkvæmt heimildum Mannlífs, var leitað í húsgrunni á Haukanesi.

Níu sitja nú í varðhaldi, einn Íslendingur og átta útlendingar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -