Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Líkur á alvarlegra afbrigði fuglaflensu til landsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Hópurinn álítur að töluverðar líkur séu á að hið alvarlega afbrigði veirunnar, sem nú er mest um í Evrópu, berist til landsins með villtum fuglum á næstu mánuðum, að óbreyttu” segir Auður Lilja Arnþórs­dóttir, sérgreina­dýralæknir smitsjúkdóma og faralds­fræði hjá Mast, segir í svari við fyrirspurn Bændablaðsins um möguleikann á að nýtt afbrigði fuglaflensum H5N8, berist til Íslands.

,,Álitið er að töluverðar líkur séu á að hið alvarlega afbrigði veirunnar, sem nú er mest um í Evrópu, berist til landsins með villtum fuglum á næstu mánuðum, að óbreyttu.“Sérfræðingahópur um fuglaflensu, sem í eiga sæti fulltrúar Matvæla­stofn­unar, Tilrauna­stöðvar HÍ að Keldum og Háskóla Íslands, fylgist vel með þróun fuglaflensu í heim­inum og þá sérstaklega á vetrar- og viðkomu­stöðum íslenskra farfugla.

Í íslenskum álftum á Írlandi

„Matið er meðal annars byggt á því að veiran greindist fyrr í vetur í íslenskum álftum sem hafa vetursetu á Írlandi. Það er því mikilvægt að fuglaeigendur hér á landi geri ráðstafanir til að verja fuglana sína fyrir smiti frá villtum fuglum. Ef fuglaflensa greinist í alifuglum eða öðrum fuglum í haldi þarf að grípa til niðurskurðar á öllum fuglum á viðkomandi stað og gera sérstakar ráðstafanir um vöktun og sóttvarnir á stóru svæði umhverfis hann og aðra staði sem honum eru tengdir.“

Auður segir að afleiðingar fugla­flensu á alifuglabúum séu mjög alvarlegar og því mikils um vert að koma í veg fyrir að smit berist inn á þau.

Ítarlegar upplýsingar um fugla­flensu og mikilvægustu sótt­varnir er að finna á vef Matvæla­stofnunar. Fuglaeigendur eru hvattir til að tilkynna Matvæla­stofnun ef þeir verða varir við grunsamleg veikindi eða aukin dauðsföll meðal fuglanna. Jafnframt er almenningur beðinn um að tilkynna til stofnunarinnar ef villtir fuglar finnast dauðir, nema ef augljóst er að þeir hafi drepist af slysförum.

- Auglýsing -


Tilkynningar má skrá sem ábendingu á vef Matvælastofnunar, www.mast.is, hringja í síma 530-4800 eða senda tölvupóst á [email protected].

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -