„Það er óróleiki á öllum mörkuðum. Markaðir á heimsvísu hafa verið að lækka. Þannig það er óvissa sem hefur skaðleg áhrif á okkur líka,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í gær um óvissuna sem nú ríkir vegna innrás Rússa í Úkraínu.
Telur hún líklegt að olíuverð hækki og fari viðskiptakjör því versnandi en það gæti leitt til hækkunar á vísitölu neysluverðs.
Lilja sagði alla óvissu mjög slæma fyrir alþjóðahagskerfið og muni fólk eflaust spyrja sig hvað gerist næst og hvort Pútín muni láta reyna á NATO-ríkin.
„Eru það Eystrasaltsríkin sem hann er að falast eftir og að endurheimta Sovétríkin eins og þau voru?“
Einhver jákvæð áhrif gætu mögulega orðið hér á landi en sagði Lilja ferðamenn mögulega vilja koma til friðsælla ríkja.
„Á móti kemur að af því að við erum friðsælt ríki getum við alveg eins átt von á því að ferðalangar sem ætluðu að heimsækja Svartahafið, þeir munu ekki gera það, þeir munu frekar vilja koma hingað,“ sagði Lilja.
Morgunblaðið fjallaði um málið í morgun.
Lilja segir óróleika á öllum mörkuðum: „Það er óvissa sem hefur skaðleg áhrif á okkur líka“

Helgarviðtalið
- Auglýsing -
Orðrómur
- Auglýsing -
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -