Fimmtudagur 28. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Lítil samskipti milli Arnars og Vítalíu – „Ég hef ekkert heyrt í henni lengi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég hef ekkert heyrt í henni lengi,“ sagði Arnar Grant um samband sitt við Vítalíu Lazarevu í samtali við Mannlíf í dag. Arnar greindi frá því fyrr í mánuðinum að hann ætli sér að bera vitni í máli Vítalíu, fari það fyrir dómstóla. Vítalía steig fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konum í janúar og lýsti ofbeldi sem hún sagði Þórð Má Jóhannesson, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson hafa beitt sig í sumarbústað árið 2020.

Arnar kvaðst ekki vita hvort búið væri að kalla þremenningana í skýrslutöku hjá lögreglu er hann ræddi við blaðamann í dag. „Þetta er hjá lögreglunni upp á Akranesi skilst mér, gerist í Skorradalnum,“ sagði Arnar en sjálfur kvaðst hann ekki hafa verið boðaður í skýrslu. Arnar hætti tímabundið störfum, sem þjálfari hjá World Class, fyrr á árinu en staðfesti hann í samtali við blaðamann að hann væri kominn aftur til starfa. Ekki er langt síðan Vítalía lokaði öllum reikningum sínum á samfélagsmiðlum og greindi frá því að hún væri á leið til Ítalíu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -