Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Litli drengurinn jarðsunginn á föstudag

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ungi drengurinn sem fannst látinn í heimahúsi í Garðabæ verður jarðsunginn á föstudag. Fjölskylda drengsins birti tilkynningu þess efnis í morgun þar sem fram kemur að útförin fari fram í Vídalínskirkju. Maximilian Helgi Ívarsson var ellefu ára gamall þegar hann lést með sviplegum hætti.

Drengurinn fannst látinn í heimahúsi í Garðabæ fyrir rúmri viku. Samfélagið er í sárum vegna málsins. Málið er mjög umtalað á meðal barna í Garðabæ. Börnin hafa aðeins fengið óljósar upplýsingar um harmleikinn. Ekkert hefur verið gefið upp um málið annað en að ekki sé grunur uppi um neitt saknæmt.

Drengurinn var í Sjálandsskóla. Mannlíf ræddi við sóknarprestinn, séra Jónu Hrönn Bolladóttur, sem var augljóslega mjög brugðið vegna atburðarins og af tillitssemi við aðstandendur gat hún ekki rætt málið. Sorgin var einfaldlega of mikil.

Bænastund var haldin síðastliðinn föstudag í Vídalínskirkju í Garðabæ. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Henning Emil Magnússon hittu nemendur Sjálandsskóla til að segja þeim frá andlátinu og veita huggun. Skólastjórnendur Sjálandsskóla sendu foreldrum tilkynningu vegna atburðarins:

„Við biðjum ykkur að umvefja börnin ykkar hlýju og eiga eins yfirvegaða umræðu og kostur er. Við leggjum áherslu á að skólastarfið haldi sínum daglega takti og að skólasamfélagið okkar standi saman á tímum sem þessum. Hugur okkar er hjá fjölskyldunni sem á nú um sárt að binda,“ skrifuðu Sesselja Þóra Gunnarsdóttir skólastjóri og Ósk Auðunsdóttir aðstoðarskólastjóri undir póstinn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -