Breski miðilinn The Guardian hefur nú birt ítarlega umfjöllun um aðbúnað starfsfólks í leikfangaverksmiðjunni Wah Tung í Heyuan í Kína. Úttektina vann The Guardain í samvinnu við samtökin Solidar Suisse og vinnueftirlit Kína.
Eitt af því sem kemur fram í grein The Guardian um málið er að fyrir þessi jól rjúka Aríel-dúkkur frá Disney úr hillum leikfangabúða. Disney-dúkkurnar eru framleiddar í Wah Tung-verksmiðjunni. Samkvæmt grein The Guardian framleiðir verksmiðjan einnig Fisher Price leikföng og önnur vinsæl leikfangamerki.
Aríel-dúkkan kostar 35 pund í breskum leikfangabúðum sem gerir um 5.500 krónur. En samkvæmt reiknidæmi The Guardian fær starfsmaður í verksmiðjunni ekki nema eitt penní, sem gerir tæpar tvær krónur, í sinn vasa fyrir vinnu sína á hverja dúkku. Þetta er niðurstaðan ef miðað er við það tímakaup sem starfsfólk verksmiðjunnar er með og þann tíma sem fer í að vinna hverja og eina dúkku.
Á meðfylgjandi mynd sést hvernig The Guardian áætlar hvernig gróðanum er skipt.
Rannsakandi á vegum The Guardian heimsótti verksmiðjuna fyrr á þessu ári og þá kom ýmislegt upp úr krafsinu. Meðal annars að starfsfólk verksmiðjunnar vinnur afar langa vinnudaga á algjörum lágmarkslaunum, um 133 krónum á dag. Launin eru svo lág að starfsfólk neyðist til að vinna mikla yfirvinnu.
Starfsfólk á ekki rétt á veikindadögum og vinnuaðstæður eru almennt slæmar. Starfsmaður greindi þá frá því að starfsfólk ætti á hættu að vera sektað eða rekið ef það tekur sér meira en þrjá veikindadaga á mánuðu.
Stundum kemur yfirmaður færibandsins og segir þær vinna hægt og öskrar á þær.
Dauðþreytt vegna langra vinnudaga nýtir starfsfólk sér matar- og kaffihlé til að leggja sig eins og sjá má á myndum sem birtust með umfjöllun The Guardian.
Í dagbók eins rannsakandans kemur fram að margir starfsmenn verksmiðjunnar eru ómenntaðar eldri konur. „Þær vinna vandlega og hratt en stundum kemur yfirmaður færibandsins og segir þær vinna hægt og öskrar á þær,“ segir í dagbókarfærslunni.
Disney er hluti af alþjóðlegu Ethical Toy Program-samtökunum (ETP) en markmið þess er meðal annars að tryggja gott vinnuumhverfi þeirra sem starfa í leikfangaverksmiðjum.
Í grein The Guardian kemur fram að ETP hafi nú hafið sína eign rannsókn á aðbúnaði og launum starfsfólks Wah Tung-verksmiðjunnar.
Umfjöllunina og myndir úr verksmiðjunni má sjá í heild sinni á vef The Guardian.