Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Lögregla harðorð um heimsóknir á gosstöðvar: „Getum lokað án fyrirvara fyrir alla umferð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Lífshættulegt er að stíga út á hraunið. Farið því aldrei út á,“ segir í þungorðri yfirlýsingu Lögreglunnar á Suðurnesjum sem kveðst get lokað án fyrirvara fyrir alla umferð inn að gosstöðvum. „Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða”.

Yfirlýsingin er með þeim harðorðari sem lögreglan hefur sent frá sér varðandi umferð um gosstöðvar og þær hættur sem þar leynast. Bent er á að frá og með miðnætti verði engir viðbragðsaðilar á staðnum, komi til dæmis eitthvað upp á.

Í yfirlýsingunni segir að leið A upp að gosstöðvum sé lokuð og fara þurfi leið B sem sé lengri og erfiðari og ekki fyrir óvana göngumenn. Auk þess sjáist ekki í eldtungur úr gígnum ef leið B er valin

„Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gosstöðvunum ef hætta er á gasmengun. Ekki er ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum. Leitum upplýsinga um loftgæði á svæðinu áður en gengið er af stað”.

Lögreglan ítrekar eftirfarandi:

  • Frá miðnætti og fram eftir degi eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum.
  • Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.
  • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni.
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
  • Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.

    Bílastæði:

    - Auglýsing -

    Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum á grasflötum við veginn en aðkoma að bílastæðum er bæði úr austri og vestri.

    Gönguleið:

    Áætla má að gangan taki 3-4 klst. fram og til baka fyrir meðalvant göngufólk. Gönguleiðin er stikuð og greinileg en hefur reynst mörgum erfið. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm og öðrum útivistarfatnaði.

    - Auglýsing -

    Á safetravel.is eru upplýsingar um stöðuna hverju sinni uppfærðar reglulega yfir daginn. Vakin er athygli á gönguleið að útsýnisstað hefur verið breytt vegna hraunflæðis.

    Loftmengun:

    Yfirborðsmengun getur verið í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina. Vegna loftmengunar er ekki ráðlagt að dvelja lengi við gosstöðvarnar. Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi.

    Spá veðurvaktar um veður og gasdreifngu í dag og á morgun:

    Suðvestan 10-15 m/s í dag. Gasið berst til norðausturs og gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu.

    Vestlæg átt 8-15 á morgun og þá blæs gasið í austur yfir byggðir á Suðurlandi.

    Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:

     

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -