Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Lögregla rannsakar Elísabetu lækni – Fór hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú heimkomu Elísabetar Guðmundsdóttur, lýtalæknis og aktívista gegn ströngum sóttvarnaráðstöfunum, til landsins í fyrradag þar sem hún neitaði að fara í landamæraskimun. Þá eru meint brot hennar á sóttvarnarlögum í gær einnig til skoðunar.

Frá þessu er greint á Vísi þar sem lögregla staðfestir rannsóknina á lækninum. Brotin snúa að því að Elísabet er sögð hafa mætt á mótmælafund á Austurvelli í gær þar sem íslenskum sóttvarnaraðgerðum var mótmælt. Það gerði hún þrátt fyrir að hún hefði átt að vera í sóttkví lögum samkvæmt. Samkvæmt sóttvarnarreglum eiga komufarþegar þann kost að velja að fara í tvær sýnatökur vegna Covid-19 með 5 daga sóttkví eða sleppa skimun og fara þá í 14 daga sóttkví. Svo virðist sem Elísabet hafi brotið gegn hvorutveggja.

Líkt og Mannlíf greindi frá lenti Elísabet í lögreglunni við komuna til landsins í fyrradag frá Danmörku. Hún birti myndbönd af því á Facebook þar sem hún neitaði að fara í sýnatöku og annað myndband síðar um kvöldið þar sem hún segir grátandi frá því að hún neyðist nú til að yfirgefa Ísland með börnin sín.

Elísabet hefur ítrekað gagnrýnt sóttvarnaraðgerðir íslenskra yfirvalda á opinberum vettvangi. Ekki gekk þrautalaust fyrir hana að komast í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að hafa neitað sýnatöku. Þar var hún látin dúsa lengi á bekk en lögreglan hafi á endanum hleypt henni í gegn án skimunar. Svo virðist sem hún hafi heldur ekki hlýtt sóttvarnarreglum hvað sóttkví varðar því hún á einnig að hafa mætt til mótmæla í gær á Austurvelli.

Elísabet segir komuna til landsins hafa verið hrylling. Hún lýsti raunum sínum þannig: „Ég er komin heim, það tók mig nokkra klukkutíma að komast heim. Ég náði að segja halló við krakkana mína og þau héldu lego-gjöfunum sem ég keypti í Danmörku. Ég var svo full af von og gleði eftir að hafa hitta þúsundir vina minna í Danmörku sem berjast fyrir frelsi okkar allra. Mér hefur verið hótað og ég held að ég geti því miður ekki verið hér. Ég mun líklega reyna að fara tilbaka með börnin mín,“ sagði Elísabet.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -