Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú með til rannsóknar umfangsmikið fjársvikamál. Samkvæmt stöðufærslu á Facebook voru sjö útlendingar handteknir í síðustu viku vegna málsins en afbrot þeirra virðast óvenju fáguð, í það minnsta miðað við hvað gengur og gerist á Íslandi.
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar umfangsmikið mál sem snýr að meintum fjársvikum og peningafölsun. Sjö, erlendir ríkisborgarar voru handteknir vegna þessa í umdæminu í síðustu viku og færðir til yfirheyrslu, en talið er að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Nokkrir til viðbótar hafa verið yfirheyrðir í tengslum við málið, auk þess sem lögreglan hefur ráðist í tvær húsleitir í þágu rannsóknarinnar,“ segir lögreglan.
Lögreglan beinir því eftirfarandi tilmælum til borgara. „Grunur er um að hópurinn hafi framvísað fölsuðum peningaseðlum í allmörg skipti og einnig svikið út peninga með því að komast yfir greiðslukort og PIN-númer hjá viðskiptavinum öldurhúsa. Lögreglan hvetur því fólk til að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn og eins að upplýsingar um PIN-númer séu ekki geymdar með greiðslukortum. Og sömuleiðis að starfsfólk við afgreiðslukassa sé á varðbergi vegna falsaðra peningaseðla.“