- Auglýsing -
Lögreglan á Suðurlandi birti fyrir stundu ljósmynd af Freyju Þorsteinsdóttur á Facebook-síðu sinni. Lýsir lögreglan eftir henni. Ekki kemur aldur Freyju fram né hvenær sást síðast til hennar.
Freyja er 164 cm á hæð, grannvaxin með dökkbrúnt, sítt hár. Hún var klædd í mjög stóra, rauða flíspeysu og Camouflage-buxur í gráum, hvítum og svörtum felulitum.
Þeir sem hafa séð Freyju eða orðið varir við hana eru vinsamlega beðnir um að setja sig í samband við lögreglu á Selfossi í gegnum 112.