Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Lögreglan leitar skotmannsins á Dubliners og hvetur viðkomandi til þess að gefa sig fram

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rétt upp úr klukkan 19.00 í kvöld fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að maður hafi komið inn á Dubliners við Naustina í miðborg Reykjavíkur og hleypti hann af einu skoti inn á staðnum.

Skotið hafnaði á vegg við barinn.

Maðurinn hljóp síðan strax af vettvangi.

Lögregla brást skjótt við og sendi mikið lið á vettvang ásamt sérsveit og sjúkraliðar voru einnig kallaðir til.

Lögreglan vopnaðist og var viðbúnaður mikill.

Enginn slasaðist alvarlega; tveir gestir staðarins fengu aðhlynningu – annar með skrámu á höfði og hinn aðilinn hafði áhyggjur af heyrn sinni.

- Auglýsing -

Stuttu seinna fundu lögreglumenn skotvopn nærri vettvangi.

Lögreglan leitar nú skotmannsins og hvetur viðkomandi til þess að gefa sig fram. Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -