Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Lögreglan lýsir eftir Danielu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Danielu Hagiu, 40 ára. Ekkert hefur sést til hennar síðar á miðvikudagskvöld. Allir þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Daniela, sem er frá Rúmeníu, er um 160 sm á hæð, með rauðbrúnt hár og blá augu. Hún er í svartri, síðri úlpu með miklum loðkraga á. Síðast er vitað um ferðir Danielu við heimili hennar á Laugavegi í Reykjavík sl. miðvikudagskvöld. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Danielu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -