Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Lögreglan var sannfærð um að Ásdís væri með fíkniefni: „Niðurlægingin var algjör“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásdís Halla Bragadóttir, athafna- og Sjálfstæðiskona, segir að frumvarp Samfylkingarinnar minni sig á það þegar lögreglan vildi henda henni í steininn, einungis vegna ættartengsla. Hún segist hafa verið niðurlægð á Leifstöð af lögreglumönnum sem töldu öruggt að hún væri með fíkniefni þar sem hún væri systir þekktra glæpamanna, Sonny og Sívars.

Hún líkir þessari reynslu við fyrrnefnt frumvarp, sem felur í sér að unnt sé að skylda alla á sóttkvíarhótel sem koma til landsins. Sjálf er Ásdís Halla erlendis og segir stutt í heimkomu, svo hún er ef til vill ekki alveg hlutlaus.  „Fyrir margt löngu beið fíkniefnalögreglan mín á Keflavíkurflugvelli. Ég var tekin afsíðis í klefa, á mér leitað hátt og lágt, allt í töskunni tekið í sundur og skoðað gaumgæfilega. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið en fíkniefnalögreglan var sannfærð um að ég væri að flytja inn ólögleg efni. Þegar ég bar um skýringar var svarið einfaldlega: Þú ert systir bræðra þinna! Bræður mínir, blessuð sé minning þeirra, höfðu báðir komist í kast við lögin og útgangspunktur fíkniefnalögreglunnar var sá að allt þetta hyski hlyti að vera eins,“ segir Ásdís Halla á Facebook.

Ásdís segist stefna á að fljúga heim til Íslands í næstu viku. „Mér fannst örla á vonbrigðum þegar ekkert fannst og mér var hleypt út með trega. Fas yfirvaldsins sýndi að ef það fengi einhverju ráðið þá ætti að loka mig inni. Bara svona til vonar og vara. Niðurlægingin var algjör og ég var fullkomlega varnarlaus. Eftir sat tilfinningin um að einstaklingurinn mætti sín lítils þegar yfirvaldið tekur til sinna ráða. Í næstu viku legg ég af stað heim til Íslands eftir að hafa unnið í Kaupmannahöfn í nokkrar vikur að verkefni sem hvergi er hægt að vinna nema hér í borginni. Ég hef unnið frá morgni til kvölds, að mestu ein með sjálfri mér, en reglulega farið í yndislegar í gönguferðir í danska vorinu,“ segir Ásdís.

Hún segist hafa passað upp á að allt sé í lagi við heimkomu. „Eina manneskjan sem ég hef hitt utan vinnunnar er æskuvinkona sem vinnur á leikskóla þar sem allir starfsmenn fara í skimanir til að ekki komi upp hópsmit. Blessunarlega hafa þau vinnubrögð sveitarfélagsins skilað góðum árangri. Í Kaupmannahöfn hef ég farið eftir tilmælum um sóttvarnir og áður en ég legg í hann til Íslands fer ég í Covid próf og með neikvæða niðurstöðu í farteskinu verður mér hleypt inn í Icelandair vélina, annars ekki. Annað Covid próf bíður mín þegar ég lendi á Keflavíkurflugvelli og svo eitt í viðbót nokkrum dögum síðar. Fjölskyldan heima hefur gert ráðstafanir svo að ég geti farið beint í sóttkví í rými með sér inngangi og baðherbergi sem enginn annar notar,“ segir hún.

Að lokum útskýrir hún nánar hvers vegna tillaga Samfylkingarinnar fer svo illa í hana. „Ég fylgist með fréttum að heiman og sé að Samfylkingin ætlar að leggja fram frumvarp sem skyldar alla á sóttkvíarhótel sem koma til landsins. Ástæðan er einföld. Fyrir einhverju síðan kom til landsins maður sem virti hvorki reglur um sóttkví né einangrun. Í framhaldinu kom upp hópsmit og mér skilst að það hafi meðal annars gerst vegna þess að starfsmaður á leikskóla mætti til starfa þrátt fyrir að vera með flensueinkenni. Hvorugt er til eftirbreytni. Veruleikinn er því miður sá að alltaf eru einhverjir sem ekki fara eftir lögum, reglum og tilmælum. Þær fáu undantekningar mega aldrei verða til þess að öllum verði hegnt,“ segir hún og bætir við:

„Eitt það besta sem gerst hefur á Íslandi undanfarin ár og áratugi er að við höfum reynt að efla skilning á ólíkum aðstæðum fólks, reynt að auka umburðarlyndi og víðsýni. Reynt að taka á málum af þekkingu en ekki sleggjudómum. Fyrirhugað frumvarp Samfylkingarinnar er afturhvarf til fortíðar. En það er ekki bara forneskjulegt heldur ósmekklegur popúlismi. Það rifjar upp fordómana sem ég þekki svo vel. Gengur út frá því að allir sem koma frá útlöndum hljóti að vera eins. Glæpamenn. Línan er einföld: Lokum allt þetta hyski inni. Bara svona til vonar og vara.“

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -