- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóru Jóhannesdóttur, sem er 81 árs gömul.
Halldóra er 160 sentimetrar á hæð; gráhærð og klædd í svartar buxur og hlébarðamunstraða peysu.
Síðast er vitað um ferðir hennar við Árskóga 2 í Reykjavík, um klukkan 13.30 í dag.
Halldóra er með Alzheimer sjúkdóminn og þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Halldóru, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.