Íbúi í miðborginni, sem íbúar hverfisins telja vanheilan og þurfi vistun, heldur íbúum í heljargreipum eftir að hafa ítrekað gengið berserksgang í miðbænum. Hefur viðkomandi skemmt margar bifreiðar með jarnrör og kúbein að vopni.
Svo virðist sem maðurinn búi á opnu sambýli í miðborginni. Íbúar hverfisins ræða skemmdarverkin í hópi hverfisbúa á Facebook. Anna stofnar þar til umræðunnar og varar við manninum:
„Einhver manneskja gekk hér um götur fyrir tæpri klukkustund með járnrör í hönd, braut og bramlaði það sem á vegi hennar varð. Lögreglan sýndi snör handtök og náði manninum. Vonandi að sem fæstir hafi orðið fyrir tjóni“, segir Anna.
Nanna nokkur er ein þeirra sem tekur þátt í umræðunni og hefur hún orðið fyrir tjóni. „Ég held að það sé sami maður að gera þetta ítrekað – fyrir ekki svo löngu rústaði hann bílum með kúbeini og þar á meðal bíl sonar míns. Þar á undan gekk hann á húsin og braut rúður í þeim,“ segir Nanna.
Valgerður hefur orðið vitni að svipuðu. „Það er svona ár síðan við urðum vitni að svona athæfi nákvæmlega á þessum slóðum, um miðjan dag á sunnudegi. Gæti verið sami náunginn og greinilega ekki búinn að fá næga útrás…“ segir Valgerður.
Það hefur Auður líka gert. „Svona 2 ár síðan í horfði á eftir manni ganga Njálsgötuna í austur og fleygja grjóti inn um glugga af handahófi á leiðinni,“ segir Auður.