Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Margrét tannlæknir segir Kristinn hafa brotið á sér 6 ára: „Vildi bara ulla upp í mig“

„Ég hugs­aði ekki mikið um þetta en mér fannst ónot­an­legt að gleðj­ast yfir dauða hans, ein­ungis 13 ára gömul; fleiri börn yrðu þá ekki fyrir barð­inu á honum.“

Svona lýsir Margrét Rósa Gríms­dóttir tann­læknir upp­lifun sinni af því þegar Kristinn E. Andr­és­son, bók­mennta­fröm­uður og Alþing­is­maður, lést árið 1973. Það gerir hún í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu þar sem hún full­yrðir að Kristinn hafi brotið á sér þegar hún var aðeins 6 ára gömul.

Kristinn var þing­maður og rit­stjóri.

Kristinn var þá tíður gestur á heim­ili hennar vegna ætt­ar­tengsla og leit­aði hann í það að taka Margréti á hné sér og hossa henni. „Mér fannst hann skemmti­legur. Svo kom að því að hann vildi snúa mér að sér og fór að kyssa mig. Ég varð mjög undr­andi og leið því mað­ur­inn kunni ekki að kyssa, vildi bara kyssa mig beint á munn­inn og ulla upp í mig,“ segir Margrét.

Margrét sagði for­eldr­unum sínum frá þessu. „Þá held ég að ég hafi skynjað hversu rangt þetta var, enda man ég enn þetta atvik. Systkini mín segja mér að for­eldrar okkar hafi hent karl­inum öfugum út, enda sá ég hann aldrei meir.“

Guðný Bjarna­dóttir læknir seg­ist einnig hafa verið ítrekað mist­notuð kyn­ferð­is­lega þegar hún var aðeins 9 ára gömul. Ger­and­inn hafi verið Kristinn, fyrr­ver­andi þing­maður og rit­stjóri Tímarits Máls og menn­ingar.

Guðný greinir frá þessu í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu þar sem hún seg­ist vilja skila skömminni, nú sex­tíu árum eftir brotin. Brotin segir hún að hafi átt sér stað bæði á heim­ili Kristins sem og heima hjá henni þar sem þing­mað­ur­inn og rit­stjór­inn fyrr­ver­andi var vinur for­eldra Guðnýjar.

„Ég finn mig knúna til að segja frá, stað­reyndir sem hafa elt mig allt lífið þó að ég hafi sem betur fer ekki látið það eyði­leggja fyrir mér meira en nauð­syn­legt er þegar barn ber leynd­ar­mál sem ekki einu sinni mamma og pabbi mega vita um. Þegar ég var níu ára fékk ég boð frá Kristni og Þóru um að koma heim til þeirra að lesa Sálminn um blómið. Þegar ég var búin að koma mér fyrir í stóra sóf­anum í fínu stof­unni hjá Kristni og Þóru lét Þóra sig hverfa fram en Kristinn varð eftir í stof­unni. Áður en ég vissi af færði hann sig að mér, tók bók­ina af mér og lét mig standa upp þétt að sér. Hann þukl­aði mig alla og rak tung­una upp í munn­inn á mér. Þetta ætl­aði engan enda að taka. Hann hélt áfram drykk­langa stund, stundi þungan, tal­aði um hve fal­leg augu ég væri með og nudd­aði bring­una og klofið á mér,“ segir Guðný og heldur áfram:

Margrét segir sína sögu bæði minni og styttri í sam­an­burði við reynslu Guðnýjar. „Í fyrstu fannst mér mín saga ekk­ert erindi eiga í blöðin en ég skipti um skoðun, ekki síst Guðnýju til stuðn­ings. Það gladdi mig mjög að sjá hve margir trúa og styðja við hana,“ segir Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu