Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Marta Guðjónsdóttir, hefur fengið nálgunarbann á mann sem lengi hefur áreitt hana með svæsnum hætti og hótunum. Fyrst var sett nálgunarbann á manninn í sumar. Í janúar rauf maðurinn bannið og því var það framlengt um eitt ár. DV greinir frá þessu.
Maðurinn hafði samband við Mörtu vegna starfa hennar í borginni og þróaðist það síðan fljótt í svæsið áreiti. Um yfirgengilegt áreiti var að ræða og hótanirnar stigmögnuðust og vegna alvarleika þeirra neyddist Marta til að leita aðstoðar lögreglu.
Marta segir í samtali við DV að hótanir og ofbeldi beri að taka alvarlega og mikilvægt fyrir kjörna fulltrúa að opinbera slíkt. Marta segir:
„Þetta hefur lagst þungt á mig og mína fjölskyldu, þetta hefur verið mikið álag í töluverðan tíma, svo keyrði þetta fram úr hófi sem leiddi til þess að ég neyddist til að leita til lögreglu.“