Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Meghan Markle geislar í brúðarkjól

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Margir bíða nú í ofvæni eftir konunglega brúðkaupinu þann 19. maí næstkomandi þegar leikkonan Meghan Markle gengur að eiga Harry Bretaprins.

Sjá einnig: Allt sem við vitum um konunglega brúðkaupið.

Meghan lauk nýverið tökum á nýjustu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Suits, sem verður líklegast hennar síðasta þáttaröð þar sem hún ku ætla að leggja leiklistarferilinn á hilluna eftir að hún játast Harry.

Í þáttaröðinni giftist karakter Meghan, Rachel Zane, unnusta sínum Mike Ross, sem leikinn er af Patrick Adams. Fréttaveitan Entertainment Weekly fékk að birta myndir úr brúðkaupssenunni þar sem Meghan klæðist afskaplega fallegum og klassískum brúðarkjól. Myndirnar má sjá hér fyrir neðan:

Sérfræðingar eru þó á einu máli um að brúðarkjóllinn úr Suits verði ólíkur þeim sem leikkonan klæðist þann 19. maí. Þar sem konungleg brúðkaup eru frekar hefðbundin er líklegt að brúðarkjóll Meghan verði með ermum, ólíkt þeim sem hún klæðist í Suits.

Lítið er vitað um kjól Meghan á stóra daginn, en talið er að hún muni klæðast fleiri en einum brúðarkjól þegar hún og Harry verða pússuð saman, þar sem Kate Middleton, eiginkona Vilhjálms Bretaprins, klæddist tveimur kjólum á sínum merkisdegi; einum í athöfninni og einum í veislunni. Líklegt er að Meghan geri slíkt hið sama.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -