Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

MIMRA: „Meira skemmtilegt og minna leiðinlegt“

MIMRA: „Meira skemmtilegt og minna leiðinlegt“
MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

MIMRA er lista­manns­nafn Maríu Magn­ús­dóttur, en hún seg­ist hafa samið tón­list undir þessu nafni síðan 2014. Áður gaf hún út tón­list undir eigin nafni. Mannlíf fékk að heyra í þess­ari flottu tón­list­ar­konu eftir útgáfu­tón­leika hennar í Salnum í Kópavogi 1. apríl.

Takmarkað upplag á vínyl er uppselt

„Útgáfu­tón­leik­arnir gengu stór­kost­lega. Ég hélt þá í Salnum í Kópavogi með hljóm­sveit­inni minni. Salurinn er stór­glæsi­legur tón­leika­staður og gaf hann tón­leik­unum virki­lega fág­aða og fal­lega umgjörð. Með mér spil­uðu Stefán Örn Gunn­laugs­son á hljóm­borð og hljóð­gervla, Sólrún Mjöll Kjart­ans­dóttir á trommur, Helga Ragn­ars­dóttir á hljóm­borð, Sam Pegg á bassa og þau Sylvía Hlyns­dóttir og Elvar Bragi Krist­jóns­son á trompeta. Ég hef sjaldan upp­lifað skemmti­legra kvöld og betri áhorf­endur. Það besta er að þetta voru bæði upp­töku- og útgáfu­tón­leikar þannig að á næst­unni má fólk eiga von á að sjá upp­tökur frá tón­leik­unum. Sér­stakar þakkir til Lista- og menn­ing­ar­sjóðs Kópavogs, Menn­ing­ar­sjóðs FÍH og Tón­list­ar­sjóðs Rannís, sem styrktu verk­efnið og gerðu að veru­leika.“

eins og eitt heild­stætt lista­verk

MIMRA fer víða, í grunn­inn mætti kalla tón­list­ina art popp eða „alt­ernative“ þjóð­laga­popp. Hljóð­heim­inum í tón­list­inni hefur verið lýst sem ein­stak­lega aðlað­andi, fág­uðum og háleitum. Hann er til­finn­inga­ríkur og ljóð­rænn með ein­staka dýpt og í víð­áttu­miklu rými. Metn­að­ar­full og áhuga­verð blanda af óhefð­bund­inni þjóð­lagatón­list með áhrifum raf­tón­listar, djass og daðri við kvik­mynda­tón­list. Samofið og sam­einað í eina heild.

María seg­ist hæstá­nægð með við­tök­urnar og segir jafn­framt að hún sé stolt af því hvernig nýja platan nær því að vera eins og eitt heild­stætt lista­verk. 

„Hvert og eitt lag flæðir inn í það næsta og myndar platan þannig eina heild. Þetta er eitt­hvað sem ekki var hægt að heyra meðan ég sendi frá mér eitt og eitt lag af plöt­unni á streym­isveitur í aðdrag­anda útgáf­unnar, sem var einmitt 1. apríl. Nú er platan komin út og hægt að hlusta á verkið í heild sinni. Stefán Örn Gunn­laugs­son, upp­töku­stjóri og aðal­sam­starfs­maður minn, á mestan heiður að því hvernig hljóð­heim­ur­inn og flæðið kom heim og saman. Við gáfum út tak­markað upp­lag á vínyl. sem er upp­selt, og ég hef fengið virki­lega góðar við­tökur og er hæstá­nægð.“

MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

Nafnið rakst ég á í Fimbulfambi – orðaspilinu

María sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2009 sem var meira r&b- og funk-skotin. Á meðan hún bjó í Hollandi í tón­list­ar­námi fóru tón­smíð­arnar að breyt­ast og þró­ast meira í átt að stærri útsetn­ingum. „Ég ein­beitti mér mikið að tón­smíðum og hljóð­færa­út­setn­ingu sam­hliða því sem ég samdi og spil­aði reglu­lega í raf­tón­list­ar­bandi, svo þannig varð til ein­hver ný nálgun hjá mér. Þegar ég fékk svo tæki­færi til að koma fram á „heyrn­ar­tóla-tón­leikum“ með eigin efni 2014 þá fann ég að ég vildi gefa þessu verk­efni nýtt nafn og síðan hef ég kallað mig MIMRU.

Spurð um heyrn­ar­tóla-tón­leik­ana segir María að þeir hafi í raun­inni verið upp­töku­tón­leikar þar sem áhorf­endur sátu með heyrn­ar­tól á milli tón­list­ar­mann­anna og allt um kring. „Ég útsetti þarna nokkur lög fyrir 14 manna hljóm­sveit með strengjum og blás­urum. Upptökur frá þessu eru á Youtube. En MIMRU-nafnið rakst ég hins vegar bara á í Fimb­ul­fambi, orða­spil­inu, fyrir langa löngu og hugs­aði með mér að það gæti verið flott lista­manns­nafn.“

notið góðs af hæfi­leik­a­ríku fólki

Þá hefur hljóm­sveitin verið mis­mun­andi upp­sett að sögn Maríu, en hún seg­ist hafa átt skemmti­legt sam­starf við marga hljóð­færa­leik­ara síðan verk­efnið hófst og notið góðs af hæfi­leik­a­ríku fólki. „Ég sendi frá mér fyrstu plötu MIMRU, Sinking Island, árið 2017 sem ég tók upp og hljóð­bland­aði sam­hliða námi mínu í Goldsmiths Uni­versity of London. Það var frum­burð­ur­inn. Finding Place er núna komin út, árið 2022, fimm árum síðar og ég er þró­að­ari í minni tón­sköpun og heild­ar­mynd. Á tón­leikum hingað til hef ég ýmist komið fram ein, með með­al­stóru bandi eða stór­hljóm­sveit. Nú finn ég að það væri gaman að halda áfram með sama fólk í kringum mig og stefni að því í áfram­hald­inu.“

MIMRA. Ljós­mynd­ari: Anna Maggý

Meira skemmtilegt og minna leiðinlegt

Það er stórt verk­efni að fylgja plötu úr hlaði svo ég held því aðeins áfram næstu miss­eri með tón­leikum og almennri athygl­is­sýki – nei, ég segi svona. Ég vona auð­vitað að tón­listin nái eyrum sem flestra og reyni að vinna að því. Annars stefni ég á gott sum­ar­frí, meira skemmti­legt og minna leið­in­legt. Ég kem fram á Reykja­vík Fringe Festival í sumar, ann­ars sé ég bara til og reyni að fylgja flæð­inu og inn­sæ­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi