- Auglýsing -
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur eins og alþjóð veit verið undir rannsókn hjá lögreglunni í Manchester frá því í sumar.
Gylfi var handtekinn vegna gruns um brot gegn ólögráða barni en hefur gengið laus gegn tryggingu í nokkra mánuði.
Tilkynnt var fyrir nokkru að mál hans væri á dagskrá 16. október, en þar sem sá dagur er laugardagur gæti málið verið tekið fyrir á morgun, ef ekki, þá á mánudaginn.
Ekkert hefur heyrst frá Gylfa eða fjölskyldu hans og vinum frá því hann var handtekinn.
Hins vegar gæti vel farið svo að mál Gylfa leysist ekki fljótt því engin tímamörk eru á slíkum málum í Bretlandi.
Ljóst er að íslenska þjóðin bíður með öndina í hálsinum eftir að mál þetta muni skýrast enda Gylfi einn vinsælasti íþróttamaður Íslands frá upphafi.