Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Morðið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum – Banvæn afbýðisemi

Morðið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum – Banvæn afbýðisemi

Þriðju­dag­inn 6. jan­úar 1957, myrti Sig­ur­björn Ingi Þor­valds­son unn­ustu sína, Concordíu Jón­atans­dóttur með rifli í eld­húsi Garð­yrkju­skól­ans á Reykjum í Hvera­gerði. Í fyrstu hlaut Sig­ur­björn 12 ára dóm fyrir morðið en Hæsti­réttur þyngdi dóm­inn í 16 ár.

Það var rétt fyrir hádegi, sunnu­dag­inn 6. jan­úar árið 1957 að Sig­ur­björn Ingi, vinnu­maður í Garð­yrkju­skól­anum fór til Hvera­gerð­ist til að hitta mann sem hann hafði vit­neskju um að ætti riffil. Fékk hann riffil­inn lán­aðan með því að ljúga því til að hann þyrfti að aflífa fót­brot­inn kálf. Maðurinn lán­aði Sig­ur­birni riffil­inn með þremur skotum í. Sig­ur­björn þurfti aðeins eitt þeirra.

Sig­ur­björn fór þá aftur í Garð­yrkju­skól­ann á Reykjum og borð­aði hádeg­is­verð með nem­endum og starfs­fólki skól­ans. Fólki brá við að sjá hann með riffil­inn en hann róaði það með því að segja ekki eiga skot í hann. Sig­ur­björn og unnusta hans, Conkordía höfðu verið á dans­leik kvöldið áður, í bænum en eng­inn hafði tekið eftir óeðli­legri hegðun hans. Conkordía var nem­andi í skól­anum en þau höfðu þekkst í rúmt ár.

Sig­ur­björn kláraði mat­inn og tók svo eina skák við annan mann í sal skól­ans en hann þótti nokkuð lunk­inn skák­maður og var vel lið­inn meðal fólks á svæð­inu. Eftir skák­ina reis hann á fætur, tók riffil­inn í hönd og gekk inn í eld­hús skól­ans. Voru þar fyrir nokkrar konur en Concordía var ein þeirra. Sig­ur­björn spurði ráðs­kon­una sem þar var, hvort nokkuð vant­aði mjólk úr fjós­inu. Þá gekk hann upp að unn­ustu sinni og beindi orðum sínum að henni:„Jæja, Día mín.“ Svo beindi hann riffl­inum að kvið hennar og tók í gikk­inn. Gekk hann svo í her­bergi sitt í róleg­heit­unum og lok­aði að sér. Lést Concordía fljót­lega eftir að skotið reið af. Klukku­tíma síðar var Sig­ur­björn hand­tek­inn af sýslu­manni Árnes­inga, Páli Hall­gríms­syni.

Concordía, sem var ein­ungis 19 ára er hún lést, hóf nám við skól­ann ári áður en Sig­ur­björn var vinnu­maður við skól­ann. Játaði hann morðið strax en gaf aldrei upp ástæð­una. Talið var að megn afbrýði­semi hans hafi átt þar þátt í máli. Þá hafði hann verið undir áhrifum sam­fleytt í nokkra daga fyrir morðið og sofið lítið, var það talið eiga sinn þátt í ákvörðun hans um að myrða unn­ustu sína. Eftir að hafa sætt geð­rann­sókn á Kleppi í sjö mán­uði, var hann tal­inn sak­hæfur.

Sig­ur­björn hafði reyndar þjáðst af þung­lyndi síð­asta hálfa árið og reynt að fremja sjálfs­víg með því að inn­byrða Lýsol, sem er sterkt efni sem notað er í sápur. Tókst þá að koma honum til læknis í tæka tíð. Síðustu mán­uð­ina fyrir morðið hafði fólk þó tekið eftir því að hann virt­ist rólegur og í ess­inu sínu.

Í Morg­un­blað­inu frá árinu 1957 er vitnað í skýrslu dr. Helga Tóm­as­sonar: „Almenn tauga­kerf­is­rann­sókn er eðli­leg, eink­an­lega skal tekið fram, að ekki eru neinir Keith Flachs hringir í aug­unum né önnur ein­kenni, sem bent gætu til svo­nefndra Hepato. Álit mitt á Sig­ur­birni Inga Þor­valds­syni er þetta: Hann er hvorki fáviti né geð­veill í venju­legum skiln­ingi, en hald­inn tíma­bund­inni drykkju­sýki, dipsom­ani. Hann hefir vefrænan tauga­sjúk­dóm. Við langa athugun á geð­spít­ala, komu engin geð­veikis­heil­kenni fram hjá honum, en fimm sinnum má telja, að um nokkrar geð­lags­sveiflur hafi verið að ræða svip­aðar þeim, sem koma fram hjá per­iodiskt drykkju­sjúkum mönnum, sveiflur sem ef hann hefði verið utan spít­ala, senni­lega hefðu valdið því að hann hefði farið að neyta áfengis. Maðurinn virð­ist fylli­lega vita hvað honum hefir orðið á og skilja við­brögð þjóð­fé­lags­ins.“

Sig­ur­björn hlaut 12 ára dóm fyrir morðið en eftir að málið var áfrýjað þyngdi Hæsti­réttur dóm­inn og bætti við 4 árum til við­bótar. Var það lengsti dómur sem nokkur hafði hlotið á Íslandi um ára­bil. Sig­ur­björn lést árið 1995.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Eltihrellirinn segist vera sonur körfuboltastjörnunnar
Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Innlent

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Alls voru 78 mál bókuð hjá lögreglu á tólf klukkustundum. Sex einstaklingar gistu fangageymslur.
Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Akur­eyr­ingur ákærður fyrir hrotta­lega kylfu­árás á sam­býl­is­mann

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“

Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli