Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Morgunblaðið heggur í Helga Seljan og Bubba: „Þú ættir að skammast þín, þú ert óþverri“

Morgunblaðið heggur í Helga Seljan og Bubba: „Þú ættir að skammast þín, þú ert óþverri“

Morg­un­blaðið hjólar í frétta­mann­inn Helga Seljan og tón­list­ar­mann­inn Bubba Morthens Stak­steinum blaðs­ins í dag. Tilefnið er vörn blaðs­ins fyrir útvegs­fyr­ir­tækið Samherja sem á undir högg að sækja þessa dag­ana.

Morg­un­blaðið gerir blogg Páls Vil­hjálms­sonar fram­halds­skóla­kenn­ara að sínu og birtir í heild sinni í Stak­steinum. Páll er helst þekktur fyrir að afneita lofts­lags­breyt­ingum og gera lítið úr nauðg­unum kvenna. Í Morg­un­blað­inu segir:

„Helgi taldi sig mega flétta saman gild­is­dómum og fréttum. Þegar hall­aði á Helga í hér­aði tók hags­muna­hóp­ur­inn RÚV málið upp á alþingi göt­unnar. Bubbi Morthens fékk rauðan dregil fyrir fés­bók­ar­færslu. Með íhygli fræði­manns­ins komst popp­söngv­ar­inn að þeirri nið­ur­stöðu að Helgi færi með „nak­inn sann­leika“. Sam­herja­bög­gið varð heil­agur sann­leikur í með­förum Bubba.“

Morg­un­blaðið heldur áfram að vitna í Páll, eða PV, eins og hann er kall­aður í Stak­steinum. „Næst sagði PV frá virkjun pírata í þágu glat­aðs mál­staðar: „„For­dæma­laust túlk­un­ar­stríð“ heitir það á pírat­ísku og þykir vont að hráar fjöl­miðla­lygar fái ekki við­töku sem sann­indi.“ Nið­ur­staða „RÚV“ og Bubba blogg­ara var: „Það sem slær mann sér­stak­lega er þögn þing­manna.“ Hvaða þing­menn munu nema skila­boðin og gleypa flug­una? „Fjöl­mið­ill sem skilur ekki mun­inn á áróðri og frétt er sið­ferði­lega og fag­lega gjald­þrota,“ segir PV rétti­lega.“

Síðasti hluti Stak­steina virð­ist koma frá Davíð Oddsyni, rit­stjóra blaðs­ins, enda fáir aðrir sem hafa ávallt gæsalappir utan um RÚV. Davíð rifjar upp þegar Páll Magn­ús­son, þáver­andi útvarps­stjóri en núver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Helgi Seljan rifust á göngum í Efsta­leit­inu.

„Forðum tíð hjólaði Helgi Seljan opin­ber­lega og með þjósti í þáver­andi útvarps­stjóra, sem var á förum úr sínum stól. „RÚV“-Helgi krafð­ist svara frá útvarps­stjór­anum um innri mál RÚV. Páll M. brást snöf­ur­mann­lega við, enda átti Helgi lítið inni, en hann gerði þó enn hróp að Páli. Við­brögðin gleym­ast seint: „Þú ættir að skamm­ast þín, þú ert óþverri,“ og virt­ist bæta við að Helgi væri skít­hæll. Helgi sagði við­brögð Páls barna­leg. Páll: „Það er skárra að vera barn en skít­hæll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára