Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Nakin kona á svölum í Háleitishverfi – Maður sem komst í fatagám klagaður

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu var tilkynnt um einstakling sem hafði komið sér inn í fatagám í austurborginni. Sá sem klagaði fór fram á að hinum yrði veitt tiltal. Engar skemmdir voru unnar á gámnum.

Mikið var um að vera hjá lögreglunni í nótt, enda mánaðarmót og margir komnir með lausafé til að skemmat sér.

Nokkur fjöldi ökumanna var staðinn að verki við akstur undir annarlegum áhrifgum, ýmist drukknir eða dópaðir. Þá voru innbrotsþjófar á sveimi og ofbeldismenn létu hendur skipta. .

Dularfullt mál kom upp í Háleitshverfi þar sem tilkynnt var um nakta konu á svölum fjölbýlishúss. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var allt með kyrrum kjörum og nakta konan horfin. Þar með lauk málinu.  Lögreglan greip einnig í tómt þegar tilkynnt var um unglingadrykkju í samkvæmi í miðborginni. Reynist vera um gabb að ræða.

Í Mosfellsbæ varð íbúa nokkrum ekki svefnsamt vegna unglinga sem sóttu að heimili hans og börðu á dyr og glugga. Þegar lögreglan kom á vettvang voru hrekkjalómarnir horfnir á braut og allt fallið í ljúfa löð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -