Undanfarið hefur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fengið tilkynningar um fjárkúgunartilraunir tengdar kynferðislegu myndspjalli á netinu.
Frá þessu er greint í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Hafa karlmenn fengið skilaboð á Instagram frá erlendum konum þar sem þeir eru beðnir um að setja upp Google Hangouts spjallforrit til að ræða við þær.
Afar fljótt verður samtalið kynferðislegt. Þegar líður á samtalið og maðurinn hefur berað sig fyrir framan myndavélina er upptaka af honum sýnd í spjallglugganum þar sem konan var áður.
Maðurinn er því næst krafinn um greiðslu, annars verði myndbandið sent vinum hans á Facebook og Instagram.
Þeir sem verða fyrir slíkum hótunum eru hvattir til að greiða ekki: ekkert hefst upp úr því annað en áframhald á kúgunum, segir á síðu Lögreglunnar.
Fólki er bent á að hægt sé að tilkynna um mál sem þessi í netfangið [email protected]
Upplýsingar sem gott er að fylgi tilkynningunni eru meðal annars Instagram reikningurinn sem fyrst var haft samband úr, netfangið á Google Hangouts reikningnum og upplýsingar um hvert á að greiða kúgaranum (reikningsnúmer).