Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Natan um ESB: „Við ákvörðunarborðið mun Ísland eiga sæti og vera með vægi langt umfram stærð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Natan Kolbeinsson, formaður Viðreisnar í Reykjavík, skrifar grein sem ber yfirskriftina:

Rykið dustað af gömlum frösum.

Hefst svona:

„Þann 13. mars skrifaði 6. þingmaður Reykavíkurkjördæmis norður pistil þar sem hún þakkaði mér fyrir að dusta rykið af gömlum ESB greinum frá henni. Staðreyndin er samt sú að þrátt fyrir að andstæðingar aðildar hér á Íslandi halda ennþá fast í gamla orðræðu og gömul rök þá hefur Evrópusambandið gengið í gegnum miklar breytingar frá því aðildarviðræður fóru síðast fram.“

Natan segir að „í grein sinni fer þingmaðurinn um víðan völl og skrifar meðal annars um að engin þörf sé á að ræða þjóðaratkvæði um aðildarviðræður þar sem við kusum til Alþingis fyrir minna en tveimur árum. Lýðræðið innan ESB Evrópusambandið er langt um lýðræðislegasta alþjóðasamstarf mannkynssögunnar enda er þar þing kosið í almennum kosningum, framkvæmdastjórn sem starfar í umboði þingsins og ráðherraráð myndað af lýðræðislega kjörnum fulltrúum allra aðildarríkja.

Það er rétt sem þingmaðurinn segir að innan ráðherraráðsins þurfa margir málaflokkar ekki einróma samþykki og þar ræður íbúafjöldi vissulega hvernig kosningar fara. Í sjávarútvegs og orkumálum, sem hún nefnir sérstaklega, þarf aukinn meirihluta fyrir samþykki. Sá meirihluti þarf að koma frá 55% aðildarríkja með 65% íbúa á bak við sig. Ótti hennar við það að lítil hópur stórra ríkja ráði þarna öllu er því algjörlega óþarfur.“

- Auglýsing -

Segir einnig að „Evrópuþingið sem kosið er í almennum kosningum myndi tryggja okkur 6 þingmenn á þinginu. Það gerir 1 þingmann fyrir hverja 42.431 kjósenda á Íslandi en til samanburðar er Þýskaland með einn þingmann fyrir hverja 637.303 kjósendur svo við Íslendingar verðum með þingmannafjölda lang umfram íbúafjölda. Þar að auki mun Ísland fá eitt sæti í framkvæmdastjórn ESB sem er sami fjöldi og öll önnur aðildarríki fá. Ísland mun því hafa fulltrúa á öllum stigum og gott betur en það.“

Natan bendir á að „lítil ríki hafa líka fengið stór og valdamikil embætti innan sambandsins. Þar má til að mynda nefna forseta Evrópuþingsins, Roberta Metsola, sem kemur frá Möltu sem er í dag minnsta aðildarríki ESB.

Við ákvörðunarborðið mun Ísland eiga sæti og vera með vægi langt umfram stærð. Við myndum ekki lengur standa frammi á gangi á meðan ákvarðanir um okkar hagsmuni eru teknar. Það þarf því enginn að óttast samstarfssamning ríkisstjórnar Þýskalands, líkt og þingmaðurinn minntist á. Þótt Þýskaland sé stórt þá ræður það ekki eitt síns liðs hvert sambandið stefnir.“

- Auglýsing -

Þetta segir Natan að endingu:

„Fyrir einu og hálfu ári gegnum við til kosninga. Kosningar sem snerust um covid-aðgerðir, skuldasöfnun ríkissjóðs í landi tækifæranna, að það skiptir máli hverjir stjórna og nokkra fleiri hluti. Málefni sem var lítið sem ekkert rætt var möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Ég er sammála háttvirtum þingmanni að Evrópumálin eru mikilvæg en þau eru ekki það eina sem ræður atkvæðum kjósenda. Að nota þingkosningar sem mælikvarða fyrir því hvort Ísland vilji í ESB eða ekki er ofureinföldun á myndinni.

Evrópusinnar óttast ekki umræðuna sagði ég í grein minni í síðustu viku og Evrópusinnar óttast ekki heldur að þjóðin fái að kjósa. Eina leiðin til að komast að því hvort hagsmunum okkar sé best borgið utan sambandsins eða innan er að þjóðin fái kjósa um aðildarviðræður. Ef þjóðin vill leyfa okkur að klára viðræðurnar þá getum við komist að því hvað okkur stendur nákvæmlega til boða.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -